Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Eldur kviknaði í etanóltækjum Mjólkusamlagsins á Sauðárkróki: „Sprengihætta í lágmarki“

Mjólkusamsalagið er í eigu Kaupfélags Skagfirðinga
Mjólku­sam­sa­lagið er í eigu Kaup­fé­lags Skag­firð­inga

Upp kom eldur í eimingar­turni Mjólkur­samlagsins á Sauðár­króki síðastliðinn laugardag. Verið var að keyra prufu­eimingu niður er eldurinn kviknaði.

Forstöðu­maður samlagsins, Magnús F. Jónsson segist í samtali við Feyki, lítið geta sagt til um atvikið annað en það að útlit er fyrir að kviknað hafi í út frá rafmagni.

Ljósmynd af brun­anum hefur farið sem eldur í sinu um sam­fé­lags­miðl­ana.

Samkvæmt Feyki höfðu starfs­menn samlagsins snör handtök og náðu þeir að ráða niður­lögum eldsins áður en slökkviliði kom á vettvang. Segir Magnús ómögulegt að meta tjónið að svo stöddu. Slökkviliðs­stjóri Bruna­varna Skaga­fjarðar, Svavar Atli Birgisson, staðfesti að eldurinn hafi kviknað úr frá rafmagni. Segir hann eldinn ekki tengjast etanólinu sjálfu.

Mikið hefur verið rætt um það í samfélaginu fyrir norðan að mikil sprengi­hætta sé af væntanlegri etanól­framleiðslu en Svavar segir slíkt tal byggt á misskilningi. „Þetta er algengur misskilningur. Það er búið að brunameta og allt tekið út af óháðum aðilum. Sprengi­hætta á svæðinu er óveruleg. Umræðan var að mörg hundruð metrar væru undir og jafnvel heilbrigðis­stofnunin í hættu en svo er ekki. Ég var á bakinu á þeim við hönnunina og eflaust hund­leiðinlegur en starfs­leyfi hefði aldrei fengist ef svo væri,“ segir Svavar í samtali við Feyki og fullyrðir að meiri sprengi­hætta sé á bensín­stöðvum. „Búið er að reikna út að ef óhapp verður og hugsanleg sprenging, hefði það kannski áhrif nokkra metra frá tankinum, sem er 33 þúsund lítra niður­grafinn tankur og í steyptri gryfju. Um turninn sjálfan loftar vel og því safnast ekki fyrir gufur og sprengi­hætta í lágmarki.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Landið

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heilluðust af íslenska hálendinu

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp