Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Svandís Svavarsdóttir úthlutar um 600 milljónum: „Ísland á réttri leið sem matvælaland“

Svandís Svavarsdóttir í viðtali hjá Guðna Ágústssyni
Svandís Svav­ars­dóttir í við­tali hjá Guðna Ágústs­syni

Svandís Svavars­dóttir, matvæla­ráðherra hefur úthlutað 584,6 milljónum króna úr Matvæla­sjóði. Alls hljóta 58 verkefni styrk en 211 umsóknir bárust til sjóðsins.

Verkefnin eru:

  • Hringrásar­hænur í bakgörðum
  • Þróa sælkera­vöru úr lamba- og kinda­slögum
  • Markaðsátak í útflutningi á íslensku viskýi
  • Aukin bragðgæði og áferð íslensks fisks með hægmeyrnun
  • Vist­hæfing landeldis
  • Bætiefna­drykkir með íslenskum þörungum
  • Eftirlit og uppruna­vottun fyrir íslenskar saltfisks­furðir
  • Prótein­framleiðsla úr grasi
  • Frumþróun bragðefna úr þangi fyrir austur­lenskan mat
  • Viðskipta­áætlun fyrir mjólkurfé og sauða­ostagerð
  • Folaldajerky og -hrápylsur
  • Verðmæta­sköpun úr hliðar­afurðum bjór­gerðar

„Sá sköpunar­kraftur og sú áræðni sem íslenskir matvæla­fram­leiðendur búa yfir er sérstakt ánægju­efni og sýnir áþreifanlega að Ísland er á réttri leið sem matvæla­land. Það gleður mig einnig að sjá að hlutföll á milli kynja eru nær jöfn,“ segir Svandís Svavars­dóttir matvæla­ráðherra.

Matvæla­sjóður veitir styrki í fjórum styrkja­flokkum: Báru, Keldu, Afurð og Fjársjóði.

Bára styrkir verkefni á hugmynda­stigi. Styrk­þegar geta verið fyrirtæki sem stofnuð eru á síðustu fimm árum. Einnig frumkvöðlar sem vilja þróa hugmynd, hráefni eða aðferðir sem tengjast íslenskri matvæla­framleiðslu.

Kelda styrkir verkefni sem miða að því að afla nýrrar þekkingar sem styður við markmið sjóðsins um nýsköpun, sjálfbærni, verðmæta­sköpun og samkeppnis­hæfni íslenskrar matvæla­framleiðslu.

Afurð styrkir verkefni sem komin eru af hugmynda­stigi en eru þó ekki tilbúin til markaðs­setningar. Styrk­veitingar miða að því að gefa styrkþegum tækifæri til að móta og þróa afurðir úr hráefnum sem falla til við matvæla­framleiðslu og stuðla þar með að verðmæta­sköpun.

Fjár­sjóður styrkir verkefni sem hafa það markmiði að styrkja markaðs­innviði og stuðla að markaðs­sókn afurða tengdum íslenskri matvæla­framleiðslu.

Hlutverk Matvæla­sjóðs er að styrkja þróun og nýsköpun við fram­leiðslu og vinnslu matvæla og hliðar­afurða úr land­búnaðar- og sjávar­afurðum. Áhersla er á nýsköpun, sjálfbærni, verðmæta­sköpun og samkeppnis­hæfni íslenskrar matvæla. Sjóðnum er einnig heimilt að styðja við vöruþróun og markaðs­sókn á erlendum mörkuðum. Sjóðurinn fylgir eftir heims­markmiðum Sameinuðu þjóðanna. Í þessum tilgangi styrkir sjóðurinn verkefni og rann­sóknir einstaklinga og lögaðila.

Sjá nánar á heimasíðu matvæla­sjóðs.
Nánari upplýsingar um úthlutun sjóðsins (pdf)

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið