Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Illugi spyr: „Hve lengi munu stjórnmálamenn halda áfram að þjóna undir rassgatið á ruddanum?“

Illugi Jökulsson.
Illugi Jök­uls­son.

Fjölmiðla­maðurinn Illugi Jökulsson segir í grein sinni á Stundinni að „það var svolítið merki­legur – eða altént lýsandi – kafli í Silfrinu í Ríkis­sjónvarpinu um daginn. Þar var Íslands­banka­salan meðal annars til umræðu og þátt­takendur höfðu missterkar skoðanir á því hvort og hversu illa hefði tekist til við söluna.“

Bætir við:

„En svo sagði Halla Gunnars­dóttir allt í einu eitthvað á þá leið að þau ættu ekki endilega bara að ræða framgangs­máta, verklags­reglur og aðferðir við banka­söluna. Staðreyndin væri sú að yfir­gnæfandi meirihluti lands­manna hefði í skoðana­könnunum lýst sig algjör­lega á móti sölu ríkis­bankanna yfirleitt. Eða á þeim hlutum sem ríkið á enn þá í bönkunum.

Engin viðbrögð Og hún gaf til kynna að umræðu­efnið ætti ekki endilega að vera hvernig ætti að selja bankana, heldur væri full ástæða til að ræða hvort ætti að gera það.“

Hann bendir á að „viðbrögðin við þessum orðum Höllu voru athyglis­verð. Því þau voru engin. Aðrir þátt­takendur horfðu undrandi á hana, hristu nánast hausinn – og héldu svo áfram að ræða verklags­reglur við bankasölu. Því AUÐVITAÐ ætti að selja bankana. Um það væri pólitískt samkomulag. Og þegar orðalagið „pólitískt samkomulag“ heyrist, þá veit maður hvað til síns friðar heyrir. Því þá er átt við samkomulag þing­flokkanna á Alþingi.“

Illugi segir einfald­lega:

„Blásum á það! Því skipti engu máli þótt 80 prósent kjósenda hafi lýst sig andvíg sölu á hlut ríkisins í bönkunum. Við blásum á það! – virtist fólk við Silfur­borðið hugsa við orð Höllu. Það sem flokkarnir vilja, það gildir! Þetta er hund­leiðinlegt einkenni á íslenskum stjórn­málum.“

Illugi segir að „vissulega eiga stjórn­málaflokkar ekki að hlaupa eftir tilfall­andi skoðana­könnunum. En sú fyrir­litning sem sýnd er skoðunum hjá valda­flokkunum á þingi og í ríkis­stjórn – og meðal furðu margra áhrifa­manna utan þings – hún er hreinlega til vansa. Í áratug hefur meirihluti aðspurðra í hverri skoðana­könnun eftir aðra lýst sig fylgjandi því að drög stjórnlaga­ráðs frá 2011 verði grund­völlur nýrrar stjórnar­skrár. Því um málið verður að ríkja „sátt“.

Í því tilfelli og svo sorglega mörgum öðrum, þá þýðir orðið „sátt“ að Sjálfstæðis­flokkurinn verði að vera sáttur við málið. Sem hann verður aldrei, því nýja stjórnar­skráin gengur í berhögg við vilja ríka fólksins sem hefur kastað eign sinni á Sjálfstæðis­flokkinn.“

Hann nefnir að „krafa flokks­eigenda Sjálfstæðis­flokksins um „sátt“ í stjórnar­skrár­málinu, sem alltof margir vel meinandi stjórn­málamenn í öðrum flokkum taka undir, hefur nú leitt til þess að þeir sem berjast fyrir því að vilji almennings nái fram að ganga, þeir eru næstum komnir með ímynd kverúlanta gaggandi forgævens úti í horni – meðan alvöru fólk talar um alvöru mál. Eins og fólkið sem horfði furðu lostið á Höllu Gunnars­dóttur af því hún vogaði sér að hreyfa vilja almennings. Með þessu var Halla kirfilega sett út á jaðarinn í þættinum!“

Illugi segir að „í rauninni eru skoðanir Sjálfstæðis­flokksins – og sér í lagi forystunnar – nánast jaðar­skoðanir í samfélaginu. Flokkurinn nýtur um 22–23 prósenta fylgis en hefur alltof lengi fengið að ráða alltof miklu. Sama er til dæmis upp á teningnum í Evrópu­sambands­málum. Í langan tíma hefur meirihluti fólks í skoðana­könnunum lýst vilja til að ganga í Evrópu­sambandið ef góðir samningar næðust (sem er reyndar næsta víst). En í stað þess að flokkarnir sameinist um að gera þjóðinni kleift að takast á við þessa spurningu með því að hefja alvöru umræðu og sækja síðan um, þá hafa aðrir flokkar látið sér lynda að málið „sé ekki á dagskrá“ af því að Sjálfstæðis­flokkurinn (eða réttara sagt hin þrönga flokks­forysta) er á móti málinu. Málið er ekki á dagskrá af því að „sátt“ mun ekki nást um það. „Sátt“ Sjálfstæðis­flokksins.“

Að endingu segir Illugi að að sé „örlítill hluti auðmanna á Íslandi sem hefur hag af því að landið sé utan Evrópu­sambandsins – þótt sjálfir njóti þeir allra kosta sambandsins. En þessi örlitli hluti ræður við að langt virðist í að það verði útkljáð – úr því meira að segja jafnaðar­manna­flokkurinn hefur sett það neðarlega á forgangs­lista sinn – og ástæðan sú að freki kallinn vill ekki heyra á málið minnst og þá er best að vera ekki að „trufla umræðuna“.

Eins og Halla gerði í Silfrinu.

En hve lengi ætlum við að dekra við freka kallinn? Hve lengi ætlum við að láta tuddann í skóla­stofunni ráða? Tala lágt og kurteis­lega, næstum hvísla, vekja ekki máls á neinu sem honum er illa við? Því hann gæti orðið reiður. Hve lengi munu stjórn­málamenn, sem vilja láta taka sig hátíðlega sem þjóna almennings, halda áfram að þjóna undir rassgatið á ruddanum svo hann verði ekki fúll?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Héraðs­dómur synjar foreldrum Sólons um vitna­leiðslu

Foreldrarnir vildu fá fram hvað sagt var á fundi sonar þeirra með starfsfólki Icelandair fyrir starfslok hans
Innlent

Biðja um svör eftir að hundar urðu kettinum þeirra að bana

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Pólitík

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Skiptar skoðanir meðal Sjálfstæðismanna um sölu á Landsbankanum

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis