Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Kristinn segir fyrstu hryðjuverkaógn Íslands minna á Fargo

Kristinn Hrafnsson, ritstjóri Wikileaks, segir að rannsókn lögreglu á meintum hryðjverkamönnum minni helst á myndina Fargo. Í hvert skipti sem eitthvað nýtt kemur fram í málinu þá minni það meira og meira á farsa.

„Fyrsta hryðjuverkaógn landsins er óneitanlega að fá á sig farsa­kenndan blæ.

Tugir byssa sem lagt var hald á – heilt vopnabúr – reynast hafa verið löglega skráðar inn í landið.  Lögreglan á í basli með að sannfæra dómara um að halda tveimur grunuðum í gæslu­varðhaldi. Búið er að ráðast til húsleitar á 17 stöðum, handtaka fjöldan allan af fólki og færa til yfirheyrslu en öllum hefur verið sleppt – nema þessum tveimur sem sitja næstu sjö daga í gæslu­varðhaldi. Grunaðir um að skipuleggja hryðju­verk gegn helgustu véum þjóðarinnar, Alþingi og árshátíð lögreglu­manna,“ segir Kristinn.

Hann bendir á að eina sem tengi þessa menn við útlönd sé lesefni frá Andrésar Breivik. „Gefið hefur verið í skyn að meintir hryðju­verkamenn tengist alþjóð­legum samtökum þjóðernis­öfga­sinna en ekki hefur verið kynnt neitt opinber­lega sem rennir stoðum undir það. Því er að vísu fleygt að einhver hafi haft undir höndum lesefni frá Andreas Breivik. Á meðan notar ráðherra lögreglunnar tækifærið og rökstyður bráða nauðsyn þess að lögreglan fái auknar eftirlits­lausar njósna­heimildir gegn borgurum landsins og aukið svigrúm til að bera skotvopn. Það sé svo mikið að skot­vopnum í umferð í skúma­skotum undir­heima. Þar sé allt fljótandi í vopnum.“

Svo kemur í ljós að faðir lögreglu­stjóra er meðal grunaðra. „Víkur þá sögunni að einum umsvifa­mesta vopna­eiganda og vopnasala landsins. Nafn hans kemur upp við rannsókn hryðjuverka­málsins og húsleit gerð heima hjá honum. Í kjölfarið þarf Ríkis­lögreglu­stjórinn að segja sig frá öllum afskiptum af hryðjuverka­rann­sókninni enda er vopna­salinn faðir hennar. Við þessum vendingum er brugðist með því að láta lögregluna hafa rafbyssur. Ef þetta hefði verði lagt fram sem sögulína frá handrits­höfundi væri viðkomandi umsvifa­laust rekinn nema ætlunin væri  að endurgera Fargo með íslensku ívafi.“

Við þetta má bæta tíst lista­konunnar Diddu Jóns­dóttur sem skrifar: „það er einhver fegurð í þeirri íróníu að leitin að hættulegasta fólki landsins leiddi til þess að það fann sig sjálft.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning