Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Greiða eigi foreldrum bætur í leikskólamálinu – stétt dagforeldra útrýmt

Hildur Björnsdóttir borgarfulltrúi og oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Kolbrún Baldursdóttir, borgarfulltrúi fyrir hönd Flokk fólksins. Samsett mynd
Hildur Björns­dóttir borg­ar­full­trúi og odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík. Kolbrún Bald­urs­dóttir, borg­ar­full­trúi fyrir hönd Flokk fólks­ins. Samsett mynd

Í tilkynningu frá Flokk fólksins sem send var Mannlífi í dag, segir að flokkurinn taki undir tillögu Sjálfstæðis­flokksins um að greiða foreldrum bætur sem eiga börn á aldrinum 12 mánaða eða eldri og eru enn á biðlista eftir leikskóla­plássi.

Grípa þarf til fjölþættra úrræða til að ná utan um það neyðar­ástand sem myndast hefur vegna skorts á leikskóla­plássum. Flokkur fólksins hefur áður talað fyrir því að veita neyðar­styrki til foreldra sem eru verst settir. Ekki allir foreldrar eiga stuðningsnet í Reykjavík og hafa því engan til að hlaupa undir bagga. Horfa þarf til þeirra sem eru efna­litlir og fátækir og veita þeim sérstakan stuðning.

Stétt dagforeldra útrýmt

Flokkur fólksins hefur einnig gagnrýnt harðlega hvernig búið er að fara með stétt dagforeldra. Henni hefur nánast verið útrýmt því talið var að verkefnið „Brúum bilið“ væri handan við hornið. Slík var vanáætlunin hjá síðasta meirihluta.

Styrkja þarf dagforeldra með öllum ráðum því nú er sannarlega mikil þörf á þessari stétt sem hefur skipað mikil­vægan sess í gæslu barna svo lengi sem elstu menn muna.

Flokkur fólksins hefur einnig lagt til úrræði um heima­greiðslur sem jafn­gildir niður­greiðslum Reykja­víkurborgar fyrir leikskóla­pláss fyrstu tvö árin. Einhverjir foreldrar hafa tækifæri til að vera heima hjá barni sínu fyrstu misserin og geta vel hugsað sér að þiggja mánaðarlegar greiðslur frekar en að þiggja leikskóla­pláss. Úrræði um heima­greiðslur mun sennilega létta á biðlistum og gætu foreldrar átt þess kost að vera heima hjá barni sínu í allt að tvö ár.

Rótgróinn mannekluvandi

Það sem þó stendur upp úr í öllu þessu er hinn rótgróni manneklu­vandi. Það verður að lagfæra launin, það er grunnur að því að þessi störf eru ekki eftirsóknar­verðari. Ef þessu vandræða­ástandi verður ekki aflétt munu foreldrar barna á bið eftir plássi ekki komast til vinnu sinnar.

Sagt að unnið sé hörðum höndum að tryggja mönnun hjá skóla- og frístunda­sviði. En hvað felst í því nákvæmlega? Þetta hefur verið viðkvæðið í mörg ár, að verið sé að vinna að því að tryggja mönnun. En svona er staðan samt.

Á sama tíma er fólki yfir 70 ára aldri meinað að vinna eftir þann aldur en meðal þess aldurs­hóps er að finna fjársjóð af mannauði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið