Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Magnús Már ráðinn framkvæmdastjóri

„Ég er virkilega spenntur fyrir þessu nýja hlutverki“

Magnús Már Guðmundsson nýr framkvæmdastjóri Áss styrktarfélags
Magnús Már Guð­munds­son nýr fram­kvæmda­stjóri Áss styrkt­ar­fé­lags Mynd: Ás Styrktarfélag

Magnús Már Guðmundsson hefur tekið við starfi framkvæmda­stjóra Áss styrktar­félags af Þóru Þórarins­dóttur, sem gegnt hafði starfinu frá árinu 2001.

„Þóra lætur nú af störfum eftir farsælan feril og hefur átt stóran þátt í þróun og uppbyggingu félagsins á þeim rúmu tveimur áratugum sem hún hefur leitt það. Við hjá Ási styrktar­félagi þökkum Þóru fyrir framlag hennar og farsælt starf í gegnum árin,“ segir Þórður Höskuldsson, formaður stjórnar Áss styrktar­félags.

Starf framkvæmda­stjóra Áss var auglýst í byrjun árs og var Magnús valinn úr hópi umsækjenda. Magnús starfaði síðast sem framkvæmda­stjóri BSRB um sjö ára skeið og hefur auk þess gegnt fjöl­breyttum störfum á starfs­ferli sínum, meðal annars sem borgar- og vara­borgar­fulltrúi, framhalds­skóla­kennari og blaða­maður. Þá hefur hann starfað með fötluðum börnum og ungmennum. „Magnús kemur til starfa með víðtæka reynslu sem mun nýtast félaginu vel við frekari uppbyggingu og þróun þess á næstu árum. Við bjóðum Magnús hjartanlega velkominn til starfa,“ segir Þórður.

„Ég er virkilega spenntur fyrir þessu nýja hlutverki og þakklátur fyrir það traust sem mér er sýnt. Starfið leggst mjög vel í mig og það verður sérstak­lega ánægjulegt að vinna með stjórn og öflugu starfs­fólki að því að standa vörð um hagsmuni félagsins og byggja áfram á þeim góða grunni sem starfsemin stendur á,“ segir Magnús Már Guðmundsson, framkvæmda­stjóri Áss styrktar­félags.

Um Ás styrktarfélag

Ás styrktar­félag er almanna­heillafélag sem var stofnað í mars 1958 af aðstand­endum fatlaðs fólks til að gæta hagsmuna þess og veita þjónustu. Félagið rekur í dag sérhæfða vinnu­staði fyrir fatlað fólk á höfuð­borgar­svæðinu sem og tíu búsetu­kjarna á höfuð­borgar­svæðinu. Ás styrktar­félag veitir um 300 manns þjónustu á sviði búsetu, dagþjónustu og vinnu. Hjá félaginu starfa um 450 manns í ríflega 300 stöðu­gildum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Félagið gerði ekki skriflega ráðningarsamninga og lagði ekki fram vaktaskrár. Dómurinn féllst á kröfur starfsmannanna að fullu.
Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Árið 2022 sagðist hún sjá sig í háskóla og pólitík eftir fimm ár. Nú hefur hún stofnað einkahlutafélag með fjölþættan tilgang.

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“