Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Segir andrúmsloftið mjög þungt: „Þetta snertir hverja einustu fjölskyldu í Rússlandi“

Yfir 1.300 mótmælendur hafa verið handteknir í Rússlandi síðan í gær.
Yfir 1.300 mót­mæl­endur hafa verið hand­teknir í Rúss­landi síðan í gær.

Rússnesk kona sem býr hér á landi segir að andrúms­loftið í Rússlandi sé mjög þungt um þessar mundir. Segir hún herkvaðninguna snerta hverja einustu fjöl­skyldu þar í landi.

Konan, sem ekki vill koma fram undir nafni af ótta við að vera sett á svartan lista sendiráðs Rússlands, segist hafa heyrt í ættingjum sínum í Rússlandi og að hljóðið í þeim sé þungt. „Ég myndi ekki segja að það sé panik í Rússum enda þeir nokkuð vanir allskonar rugli í landinu, sérstak­lega undan­farið en andrúms­loftið er mjög þungt,“ sagði konan í samtali við Mannlíf en Rúss­lands­forseti tilkynnti í gær að hann hyggðist setja í gang herkvaðningu 300.000 manna varaliðs en hún segir að allir viti að þetta sé aðeins byrjunin. „Þeir segja að þeir sem eru í vara­liðinu verði fyrst kallaðir í stríðið en þetta er bara fyrsta bylgjan, hver veit hvernig sú næsta verður? En svo er þetta orðalagið svo vítt, þeir segja að varaliðið verði sent í stríðið en líka þeir sem vinna í störfum sem gagnast hernum eins og til dæmis læknar, bæði konur og karlar hafa fengið tilkynningar um að mæta. Í héruðum Rússlands veit enginn hvað gerist.“

Segir hún ennfremur hún hafi heyrt að þeir drengir og menn sem eru í vara­liðinu séu gripnir úti á götu og í neðarjarðarlestum og víðar og þar verða þeir að skrifa undir kvaðningu og eru þá skyldugir til að mæta í stríðið en að það sé ólöglegt því samkvæmt lögum megi aðeins afhenda herkvaðningu á lögheimilum, í skólum og vinnum einstaklinganna. „Flestir eru að reyna að flýja Rússland núna, fara í einhver lönd þar sem þeir þurfa ekki dvalar­leyfi. Ég hef verið að spjalla við ættingja mína á lands­byggðinni í Rússlandi, sem flestir þekkja einhverja sem hafa verið kvaddir í herinn og segja að þeir séu að reyna að fela sig eða vona að þeir fái undanþágu vegna vinnu sinnar og fleira.“

Þá segist konan vonast til að þetta muni valda reiði­bylgju í Rússlandi. „Þetta snertir hverja einustu fjöl­skyldu í Rússlandi.“

Samkvæmt heimildar­manni innan Kremlar, sem talaði við Novaya Gazeta frétta­miðilinn, ákváðu yfirvöld að birta opinber­lega nýju lögin um herkvaðninguna, nema kafla 7 en hann snýr að fjöldi þeirra sem verða kvaddir í herinn. „Þeir breyttu tölunum oft en enduðu að lokum í einni milljón,“ sagði heimildar­maðurinn um þann fjölda sem gætu þurft að berjast í stríðinu, til viðbótar við þá sem berjast nú.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning