Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Brynjar um borgina: „Meirihlutinn í borginni hagar sér eins og átfíkill á hlaðborði“

Brynjar Níelsson.
Brynjar Níelsson.

Brynjar Níelsson lætur gamminn geysa varðandi rekstur Reykja­víkurborgar, og segir:

„Nú eru menn loksins að átta sig á að óráðsía hefur verið lengi í rekstri borgarinnar. Borgar­búar munu finna verulega fyrir því næstu árin, því óráðsía er stundar­gaman og jafnan hluti af lýðskrumi og kemur alltaf í bakið á okkur á endanum,“ segir ákveðinn Brynjar pg bætir við:

„Gömlu R lista flokkarnir hafa verið svo uppteknir af því að halda Sjálfstæðis­flokknum frá stjórn borgarinnar að þeim hefur tekist að finna nýjar hækjur eftir hverjar kosningar til að halda völdum og taka þátt í þessu stundar­gamni. Það verður að teljast talsvert afrek að geta safnað skuldum á sama tíma og tekjur hafi aukist til muna. Og ekki er það síður afrek að auka útgjöld verulega án þess að nokkur verði var við betri þjónustu eða aukin gæði. Frekar að þessi auknu útgjöld fari í það að gera borgar­búum erfiðara fyrir og skapa leiðindi. Ekki ólíkir RÚV að þessu leyti.“

Hann segir að „stjórn­málamönnum mörgum virðist fyrir­munað að standa í lappirnar þegar kemur að útgjalda­kröfum. Síðast gerðist það með afgerandi hætti þegar fjármála­ráðherra og meirihluti þingsins ákvað að stöðu­leika­framlagið frá slita­búunum færi í að greiða niður skuldir í stað þess að láta undan útgjalda­kröfum stjórnar­andstöðunnar. Meirihlutinn í borginni hagar sér eins og átfíkill á hlaðborði. En óráðsía stjórn­málamanna verður ekki löguð með maga­ermisaðgerð.“

Brynjar vill að Reykja­víkurborg taki almennilega til hjá sér:

„Í stað þess að taka á rekstrinum og haga seglum eftir vindi eru skuldir auknar og skattar hækkaðir sem og gjöld. Við viljum helst að komandi kynslóðir greiði fyrir gæði og vellíðan okkar. Held að ungt fólk ætti að stíga niður fæti og setja þessa stjórn­málamenn í skammar­krókinn. Með verulegri verðbólgu á mann­réttinda­hugtakinu hefur útgjalda­þörfin aukist. Nú eru það beinlínis mann­réttindi að hvaða útlend­ingur sem er eigi rétt á fram­færslu frá skatt­greiðendum og aðgang að almanna­tryggingar­kerfinu svo lengi sem þeir kjósi og einnig þótt þeir séu ólöglega í landinu. Fatlaðir eigi rétt á þjónustu allan sólar­hringinn heima hjá sér. Öll heilbrigðis­þjónusta og menntun á að vera gjaldfrí, leik­skólar og matur í skólum ókeypis og svo framvegis.“

Segir að endingu:

„Toppurinn í allri þessari vitleysu er máls­höfðun Gráa hersins, sem telur það mann­réttindi að fá fulla greiðslu úr almanna­trygginga­kerfinu óháð öðrum tekjum. Mér skilst að hann ætli að láta á það reyna hvort Mann­réttinda­dómstóll Evrópu sé ekki tilbúinn að taka yfir fjár­veitinga­valdið á Íslandi. Mér sýnist að öll þessi nútíma mann­réttinda­ákvæði og hinir og þessir mann­réttinda­sáttmálar og viðaukar sem við skrifum undir í gríð og erg munu keyra vestræn lýðræðis­ríki í þrot. Allavega safna þau skuldum sem aldrei fyrr. Ef ekki er gripið í taumana núna munum við enda í djúpri og lang­varandi kreppu. Þá munu öll mann­réttindi gleymast.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Héraðs­dómur synjar foreldrum Sólons um vitna­leiðslu

Foreldrarnir vildu fá fram hvað sagt var á fundi sonar þeirra með starfsfólki Icelandair fyrir starfslok hans
Innlent

Biðja um svör eftir að hundar urðu kettinum þeirra að bana

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Pólitík

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Skiptar skoðanir meðal Sjálfstæðismanna um sölu á Landsbankanum

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis