Meirihluti sveitarstjórnar Múlaþings neitar að greiða öldungarráði Múlaþings fyrir fundarsetu, með þeim rökum að ekki sé um fastanefnd á vegum sveitarfélagsins að ræða, heldur ólaunaðan samráðsvettvang.
Snemma mánaðar lét öldungarráðið bóka beiðni sína um að sú mismunum að ekki sé greitt fyrir fundarsetu ráðsins eins og venjan er í öðrum ráðum Múlaþings, verði leiðrétt.
Austurfrétt segir frá því að í skýringuna sé að finna í erindisbréfi öldungaráðs þar sem segir að ráðið sé ekki fastanefnd á vegum Múlaþings, heldur samráðsvettvangur sem skipaður sé á grundvelli laga um félagsþjónustu sveitarfélaga.
Sex eldri borgarar sitja í öldungarráðinu en þeir geta haft áhrif á ýmsa hluti og ákvarðanir innan Múlaþings er snýr að eldri borgurum og eru þeir stundum beðnir álits á öðrum málum á borð við samgöngumál og deilaskipulagsmál. Öldungaráðið hittist að jafnaði tvisvar til þrisvar sinnum á ári.
Nefndarmenn í ungmennaráði Múlaþings fá hins vegar greiðslur eins og aðrið en það ráð hittist mun oftar eða allt að tíu sinnum árlega.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir