Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Segir ríkisstjórnina ráðalausa: „Ofbeldi meðal barna og fullorðinna er að aukast á öllum vígstöðum“

Á að bíta barn sem bítur? er yfir­skrift greinar sem Eva Sjöfn Helga­dóttir vara­þingkona Pírata skrifar:

„Frétta­flutningur af alvarlegum ofbeldis­brotum á Íslandi hefur verið svo hávær að undan­förnu að fólk er farið að spyrja hvort ofbeldis­brotum sé að fjölga. Svarið við þeirri spurningu er því miður einfalt: já. Þeim hefur fjölgað umtals­vert á síðustu níu árum, eða um 64%. Fólks­fjölgun skýrir ekki þessa síhækkandi tíðni því hún var aðeins um 15% á sama tímabili.“

Hún nefnir að „í svari frá dómsmála­ráðherra um ofbeldis­brot framin af börnum kemur í ljós að þeim hefur ekki síður fjölgað undan­farin níu ár. Árið 2012 var 71 barn grunað um alvarlegt ofbeldis­brot – en á síðasta ári var talan komin upp í 170. Þá hefur fjöldi brota einnig marg­faldast á tíma­bilinu, sem þýðir að þau börn sem fremja ofbeldis­brot eru farin að gera það í auknum mæli: https://www.althingi.is/altext/152/s/0557.html

Eva Sjöfn spyr:

Eru rafbyssur svarið? Þessi þróun er vægast sagt ógnvænleg og kallar á skýr viðbrögð frá ríkis­stjórninni, en þau virðast ekki ætla að bregðast við henni með langtíma­úrræðum eða auknum forvörnum. Þau telja það hins vegar þjóðþrifamál, í skugga stig­vaxandi ofbeldis, að auka vopnaburð lögreglu og leyfa þeim að ganga með rafbyssur. Þau ætla semsagt að bregðast við auknu ofbeldi með meira ofbeldi.“

Hún nefnir réttilega að „rafstuð getur leitt til andláts; það hljómar vægast sagt eins og undarleg lausn. Rafbyssur eru hættulegar og fólk hefur látist í kjölfar þess að fá rafstuð. Hegðun mótast mikið af herminámi og ef við viljum að unga fólkið okkar hætti að beita ofbeldi gefur auga leið að lausnin felst ekki í auknum heimildum löggæslu til að beita ofbeldi. Á sama hátt og við kennum ekki barni að hætta að bíta með því að bíta það.“

Eva Sjöfn segir að „það þarf að hugsa dæmið upp á nýtt og skilgreina hvernig við ætlum að fyrir­byggja ofbeldi og tryggja öryggi fólks. Vissulega þarf einnig að tryggja öryggi starfs­fólks lögreglu – en ég tel að hér sé verið að byrja á öfugum enda.

Í átakanlegum Kastljóss­þætti fyrr í vikunni var rætt um andlegt ofbeldi sem hinsegin börn verða í auknum mæli fyrir frá jafningjum sínum. Ljóst er að ofbeldi meðal barna og full­orðinna er að aukast á öllum vígstöðum og ríkis­stjórnin verður að átta sig á því að lausnin við ofbeldi er aldrei meira ofbeldi. Það þarf að líta þessa skelfi­legu þróun mjög alvarlegum augum og leita skilvirkra leiða til að snúa henni við áður en fleiri börn finna sig knúin til að enda eigið líf vegna ofbeldis sem þau verða fyrir. Ríki­stjórn þessa lands ber ábyrgð á því að bregðast við þessu, ekki seinna en í dag.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning