Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Illugi segir sókn fasistahreyfinga ekki óstöðvandi

„Það þarf að vinna mikið og lengi til að sigrast á þeim“

Illugi Jökulsson
Illugi Jök­uls­son Segir vel hægt að stöðva fram­gang fas­ista.

Illugi Jökulsson rithöfundur og fjölmiðla­maður segir að þrátt fyrir aukið fylgi öfga­hægri­hreyfinga í Evrópu sé þróunin ekki óafturkræf. Þetta kemur fram í Facebook-færslu hans þar sem hann fjallar meðal annars um stöðu Þjóð­fylkingar Marine Le Pen í Frakk­landi.

Illugi bendir á að þótt flokkurinn hafi náð árangri í kosningum hafi víða tekist að stöðva frekari framgang hans:

„Fasisminn er ekki ósigrandi. Þótt Þjóð­fylking Marie Le Pen hafi vissulega unnið sína sigra í héraðs- og borgar­stjórnar­kosningum í Frakk­landi, þá tókst þó víða og oft að stöðva sókn fylkingarinnar.“

Hann segir að undan­farin ár hafi mörgum þótt eins og vöxtur slíkra hreyfinga væri óstöðvandi, en að nú kunni að vera merki um breytingar:

„Undan­farin ár hefur manni stundum virst sem framsókn hinna ýmsu ögfahægrihreyfinga í Evrópu (og víðar!) sé óstöðvandi en þetta er kannski örlítill vorboði um að fólki fari að þykja nóg komið,“ skrifar Illugi en við færsluna birti hann skjáskot af frétt sem segir frá sigri sósíal­ista í borgar­stjórnar­kosningum Parísar.

Að mati Illuga krefst það þraut­seigju að snúa þróuninni við og mikilvægt sé að missa ekki móðinn þrátt fyrir bakslög:

„Það þarf að vinna mikið og lengi til að sigrast á þeim, það þarf að sýna þolgæði og kunna að taka ósigrum en ögur­stundin rennur upp á endanum, og þá þarf að grípa tækifærið.“

Hann tekur jafnframt fram að ekki beri að jafna alla stuðnings­menn slíkra flokka við fasista, þótt hann telji hreyfingarnar sjálfar bera slík einkenni:

„Og athugið að þó ég noti hér orðið fasismi, þá þýðir það ekki að allir fram­bjóðendur og hvað þá allir kjósendur flokka eins og Þjóð­fylkingarinnar séu fasistar. Það þýðir bara að slíkar hreyfingar eru einatt fasískar í eðli sínu eða daðra að minnsta kosti við fasismann svo blákalt að það kemur í sama stað niður.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Pólitík

„Staðan á vissum tímum sólar­hringsins orðin nánast óbærileg“

Umferðartafir á Reykjanesbraut í Hafnarfirði eru miklar á álagstímum, að sögn Árna Rúnars Þorvaldssonar, sem kallar eftir úrbótum.
  • Aðeins þrír róðrar áður en hjónin riftu kaupunum

  • „Af tvennu illu er skárra að böðullinn sé ekki í felulitum frjáls­lyndis“

  • Segir Ísland útiloka einmitt þá innflytj­endur sem landið þarf á að halda

  • Segir trygginga­félögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

  • Sigríður vill kanna hvort Ísland geti tekið þátt í brott­far­ar­stöð í Rúanda