Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Spaðinn leggur upp laupana – ætlaði að setja Dominos á hausinn

Þórarinn Ævarsson. Mynd/skjáskot RÚV
Þórarinn Ævarsson. Mynd/skjá­skot RÚV Mynd: ruv

Veitinga­staðurinn Spaðinn hefur nú lokað eftir um tveggja ára starfsemi. Staðurinn bauð upp á pitsur og hafði framkvæmda­stjóri staðarins hátt um það í viðtölum að ætla sér að setja pitsu­staðinn Dominos á hausinn.

Þórarinn Ævarson, framkvæmda­stjóri Spaðans, hefur sent frá sér tilkynningu þar sem segir að ekki hafi lengur verið rekstrar­grundvöllur fyrir starfsemi Spaðans. Því hafi síðasti opnunar­dagur veitinga­staðarins verið í gær, sunnu­daginn 3. júlí. Vísir greinir frá lokuninni.

Þórarinn Ævarsson var framkvæmda­stjóri IKEA á Íslandi áður en hann opnaði Spaðann. Áður en hann tók við taumunum hjá IKEA stýrði hann hins vegar Dominos, pitsu­staðnum sívinsæla. Þegar Þórarinn opnaði Spaðann fór hann mikinn í fjöl­miðlum og sagðist meðal annars ætla sér að keyra Dominos í þrot á fimm árum. Hann baðst síðar afsökunar á ummælunum og sagði stór orð eiga það til að falla í hita leiksins. „Ástríða fyr­ir mál­efn­um á það til að hleypa manni kapp í kinn, svo ekki sé kveðið fast­ar að,“ sagði Þórarinn.

Upp úr þessu fór af stað það sem kallað var pitsu­stríð á Íslandi, þar sem Spaðinn fór meðal annars að bjóða upp á þriðjudags­tilboð sem Dominos reið á vaðið með á sínum tíma, en fleiri veitinga­staðir höfðu tekið upp. Í verð­könnun Mannlífs síðastliðið haust kom í ljós að Spaðinn bauð betur en Dominos á þriðjudögum.

Í byrjun árs 2021 kom fram að fjárfesta­hópur sem Þórarinn fór fyrir var einn af þremur fjárfesta­hópum sem vildu kaupa rekstur Dominos á Íslandi. Að endingu var tilboð Birgis Þórs Bieltvedt samþykkt.

Spaðinn bauð upp á pitsur á lægra verði en almennt þekktist hér á landi, en Þórarinn hafði gagnrýnt álagningu Dominos, sem og annarra pitsu­staða, og sagt viðskipta­módel þeirra bæði stuðla að matarsóun og óheil­brigðum lífsstíl, þar sem fólki væri yfirleitt beint í þá átt að kaupa meira en það þyrfti.

„Skuldir Spaðans eru nær einvörðungu við eigendur fyrir­tækisins en þar sem rekstrar­grundvöllur er brostinn er það mat eiganda að réttast sé að hætta starfsemi. Því var síðasti starfs­dagur þess í gær, sunnu­daginn 3. júlí,“ segir í tilkynningu Þórarins.

Spaðinn rak tvo veitinga­staði, í Kópavogi og Hafnar­firði. Útibú Spaðans í Hafnar­firði lokaði þó í maí síðastliðnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá