Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Aðskota­efni í kexi

Heimur

Orðrómur um staf­rænan heimsendi 17. nóv­em­ber vekur ótta

Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Innlent

Kven­fanga synjað um náðun þrátt fyrir alvar­leg veik­indi

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Súkkulaðisvindlarinn Karl laug um bílslys og andlát: „Maðurinn átti samúð allra“

Alda­mótin 1999 til 2000 voru full hörm­unga í lífi Karls Olgeirs­sonar, starfs­manns Nóa-Siríus. Þessi dugn­að­ar­forkur og hvers mann hug­ljúfi, brotn­aði saman við fram­leiðslu á Malta súkkulaði­kexi, og grét eins og barn.

Með því hófst svika­saga manns­ins sem síðar var nefndur Súkkulað­is­vindl­ar­inn á síðum fjöl­miðla.

Bílslys og andlát

Aðspurður sagði Karl sam­starfs­mönnum frá að dóttir hans hefði lent í alvar­legu bílslysi í Svíþjóð og væri háls- og hrygg­brotin og auk þess að vera með ónýt nýru. Hún ku hafa verið á bana­beði og óljóst hvernig færi.

Sam­starfs­menn Karls voru eðli­lega slegnir yfir þessum tíð­indum og ekki bætti úr þegar móðir Karls lést skyndi­lega aðeins viku eftir slysið hrylli­lega. Bylgja sam­úðar reis upp meðal vinnu­fé­lag­ana sem fundu mikið til með sam­starfs­manni sínum sem hafði þurft að þola svo mikla sorg. Ekki bætti úr skák þegar Karl gat stunið upp, á milli ekk­anna, að nú væri gott að hafa eig­in­konu sína sér við hlið. Hún hefði aftur á móti lát­ist úr krabba­meini, aðeins átta mán­uði inn í hjóna­bandið.

Ekki átti af hörm­ungum Karl að ganga, því tveimur dögum eftir and­lát móð­ur­innar lést fyrr­nefnd dóttir á skurð­ar­borð­inu í Svíþjóð.

Peningarnir rúlla inn

Sam­starfs­menn Karls sáu að við svo búið mátti ekki standa og meira þyrfti til en faðm­lög og tis­sjú til að bæta líðan hans. Örn Ottesen, fjár­mála­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, greip til heft­is­ins og skrif­aði í snari upp á ávísun að upp­hæð 200 þús­und krónum og létu starfs­menn sitt ekki eftir liggja. Þeir hófu þegar söfnun þar sem bæði starfs­fólk og for­eldrar þeirra létu fé að hendi renna. Lagt var upp með að ná 500 þús­und krónum svo Karl gæti nú farið til Sví­þjóðar auk þess sem fyrir lá jarð­ar­far­ar­kostn­aður.

Mörg hund­ruð þús­undum var safnað en heim­ildir rokka nokkuð um hversu há upp­hæðin var sem á end­anum safn­að­ist.

Jarðarförin sem aldrei var

Eftir nokkurn tíma fóru tvær grímur að renna á sam­starfs­fólkið. Sér í lagi þegar kom að jarð­ar­för móð­ur­innar sál­ugu sem virt­ist hafa fengið ein­hvers konar flýti­með­ferð í Foss­vogs­kirkju­garði, svo hratt gengu hlut­irnir fyrir sig að sögn Karls. Örn bað verk­smiðju­stjór­ann að kanna málið betur og hringdi hinn síð­ar­nefndi í Foss­vog­skapellu til að spyrj­ast nánar fyrir um útför­ina. Þar kann­að­ist eng­inn við umrædda konu né að nokkur jarð­ar­för í hennar nafni hefði, eða stæði til, að færi fram.

Í jan­úar 2000 komst upp um lyga­sögur Karls og lagði fyr­ir­tækið umsvifa­laust fram kæru á hendur honum til lög­reglu. Vart þarf að taka fram að Karl missti vinn­una.

Erni fjár­mála­stjóra var ekki skemmt og sagði það háal­var­legt mál þegar fólk léki sér með til­finn­ingar ann­arra á þennan hátt. „Maðurinn átti samúð allra hér enda var ég á því að hann ætti að fá verð­laun fyrir leik­list, því­lík var frammi­staða hans,“ sagði Ómar í við­tali við DV á sínum tíma.

Missti það sem kærast var

En hann missti ekki bara vinn­una, hann missti líka harm­ónik­una sína. Í við­tali við DV, sem fluttir ítar­legar fréttir af mál­inu, sagði hann frétta­flutn­ing blaðs­ins hafa orðið til þess að hann missti það sem honum var kær­ast. Harm­oník­una sína. „Nágranni minn keypti harm­oník­una fyrir mig og greiddi fyrir með rað­greiðslum á krít­ar­korti sínu og ég borg­aði honum síðan mán­að­ar­lega afborgun. Eftir að hann las um mig í DV þá kom hann rak­leiðis hingað upp og tók harm­oník­una. Þó var ég búinn að greiða allar afborg­an­irnar nema fyrir des­em­ber en þá átti ég ekki pen­ing,“ sagði Karl síðar í við­tali við DV.

Karl sagði við DV nokkru síðar ekki fara út fyrir dyr því hann skamm­að­ist sín svo mikið. „Ég verð að leita mér hjálpar. Þetta er eitt­hvað sjúk­legt sem ég ræð ekki við. Mig vant­aði pen­inga og því spann ég sög­una upp,“ sagði súkkulað­is­vindl­ar­inn.

Karl sá mikið eftir gjörðum sínum og við­ur­kenndi brot sín hiks­ta­laust. Hann sagð­ist glíma við lygafíkn og hygð­ist leita sér hjálpar við henni.

Karl var einn af örfáum svika­hröppum, sem upp hefur kom­ist um, sem við­ur­kenndi brot sín. Það er eitt­hvað sem sjaldan sést og verður ekki af honum tekið.

Bak­sýn­is­speg­ill þessi birtst fyrst 1. júlí 2021 og skrifað Guðrún Gyða Eyþórs Árna­dóttir hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Hildur Lilliendahl Viggósdóttir segir frá sorg og kvíða eftir að henni var sagt upp hjá Reykjavíkurborg eftir átján ára starf.
Heimur

Telja sig hafa náð for­sögu­legri flug­eðlu á mynd­band í Mexíkó

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Sautján ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tólf ára stúlku

Heimur

Loch Ness-skrímslið sést oftar í ár en í fyrra

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni