Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Nýr forsetisráðherra Ungverjalands hótar Netanyahu handtöku

Ungverja­land hættir við úrsögn úr ICC eftir valdatöku Magyars

Peter Magyar
Peter Magyar Magyar tekur skýra afstöðu Mynd: ATTILA KISBENEDEK / AFP

Nýkjörinn forsætis­ráðherra Ungverja­landi hefur lýst því yfir að hann muni stöðva úrsögn landsins úr Alþjóð­lega sakamála­dómstólnum (ICC).

Peter Magyar, sem er á leiðinni í embætti eftir sögulegan kosninga­sigur fyrr í mánuðinum og þar með lok 16 ára valdatíma Viktor Orbán, tilkynnti þetta á blaðamanna­fundi í Búdapest. Samhliða sendi hann viðvörun til Benjamin Netanyahu.

Aðild að dómstólnum þýðir að einstaklingar sem eru eftir­lýstir af honum geta verið hand­teknir ef þeir koma til Ungverja­lands.

Magyar sagðist hafa gert Netanyahu þetta ljóst. Ísraelski forsætis­ráðherrann hefur verið eftir­lýstur síðan 2024 vegna meintra stríðs­glæpa á Gaza.

Orbán hafði tilkynnt um úrsögn Ungverja­lands úr ICC á síðasta ári, meðal annars vegna andstöðu sinnar við handtöku­skipunina á hendur Netanyahu.

Átti úrsögnin að taka gildi 2. júní og gera Ungverja­land að eina ríki Evrópu­sambandsins sem viðurkennir ekki lögsögu dómstólsins. Magyar, leiðtogi mið-hægri flokksins Tisza, sagði hins vegar að teymi hans hefði farið yfir málið og að úrsögnin yrði stöðvuð.

„Ég tel að ef land er aðili að Alþjóð­lega sakamála­dómstólnum og einstaklingur sem er eftir­lýstur af honum kemur inn á yfirráða­svæði þess, þá beri að handtaka viðkomandi,“ sagði hann og vísaði til Netanyahu.

Handtöku­skipunin á hendur Netanyahu var harðlega gagnrýnd á sínum tíma af þáverandi forseta Banda­ríkjanna, Joe Biden. Eftir­maður hans, Donald Trump, hefur haldið áfram að styðja Netanyahu eindregið.

Banda­ríkin eru ekki aðilar að ICC og Netanyahu hefur ítrekað heimsótt bæði Washington og heimili Trumps í Flórída, meðal annars áður en hernaðar­aðgerðir gegn Íran hófust.

Trump og Netanyahu hafa jafnframt verið stuðnings­menn Orbáns og vonuðust til að hann héldi völdum áfram, þar til hann beið ósigur í kosningunum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Sýrlensk yfirvöld segja að ráðamenn hafi hitt Amarna Miller af tilviljun í Palmyra og hafna því að henni hafi verið boðið til landsins.

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár