Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Alexandra er umhverfisvæn og vill forðast plast: „Versla í matinn fyrir lágmark þrjá daga í einu“

Alexandra Sif Herleifsdóttir
Alex­andra Sif Her­leifs­dóttir Mynd: 244910363027102

Neytandi vikunnar er Alexandra Sif Herleifs­dóttir, á maka, eitt barn og annað á leiðinni. Fjöl­skyldan býr í Innri Njarðvík. Hún er íþrótta­fræðingur að mennt og heldur úti heilsu­miðlinum Lexa heilsa á instagram og heldur heilsu­fyrirlestra. Einnig er hún með annan fótinn inn í fyrirtæki sem heitir Ekki gefast upp! sem er líkams­rækt fyrir ungmenni sem glíma við kvíða. Alexandra er neytandi vikunnar.

Alex­andra Sif Her­leifs­dóttir.

Hvernig hagar þú innkaupum til að neyta hollrar fæðu?

Hollusta í mataræði er svo ótrúlega einstaklings­bundið. Ég til dæmis borða ekki mjólkur­vörur, borða mikið plöntu­fæði og reyni að velja eitthvað sem ég veit að mér muni líða vel af. Oft notast ég við uppskriftir á veganistur.is.

Hvar verslar þú helst?

Við fjöl­skyldan verslum helst matvörur í Krónunni og Bónus. Fatnað reyni ég að kaupa í búðum eins og Barna­loppan, Hringekjan, Verslunar­höllin og þess háttar verslunum. Hins vegar er ég 181cm og á það til að versla einstaka flíkur í Tall deildinni á Asos. Einnig er ég hrifin af Lindex en þar standa mannúðar­ástæður og gæði upp úr.

Gerir þú verðsamanburð á vörum og þjónustu?

Kærastinn minn er duglegri í þessu en ég en við reynum að vera meðvituð, sérstak­lega núna þegar matar­karfan er að hækka upp úr öllu valdi.

Hvað með sparnað í matarinnkaupum og hverju vilt þú breyta sem neytandi?

Ég vil fara í búð og versla í matinn fyrir lágmark þrjá daga í einu. Um leið og það er skipulag með kvöld­matinn þá eru minni líkur á að við kaupum skyndi­bita eða eitthvað tilbúið.  

Hverju átt þú erfiðast með að draga úr kaupum á?

Vörum sem eru nauð­synjar á heimilið en koma í alltof miklu plasti. Ég væri til í að minnka umbúðir, eins og ávexti og grænmeti. Finnst fáránlegt hvað það er erfitt að minnka kaup á vörum í plasti. Einnig er ég ekki nógu skipulögð með að taka mat með mér svo ég á það til að grípa í mat ef ég er á ferðinni.

Endurnýtir þú? Hvaða ráð hefur þú til annarra?

Eitt af mínum helstu markmiðum í lífinu er að vera eins umhverfisvæn og ég get. Ég endurnýti til dæmis alla plastpoka sem falla til, við endur­vinnum allt sem hægt er að endur­vinna, kaupum notað og erum meðvituð um kaup­hegðun.

umhverf­is­vernd skiptir mig miklu máli

Eitt af mínum mottóum er að umhverfisvænasta varan sem þú kaupir er varan sem þú kaupir ekki. Ef ég kaupi mér flík t.d. vil ég hafa gott notagildi fyrir hana Ég geymi skraut af pökkum til að nota áfram, jafnvel gjafa­pappír ef það er hægt.

Umhverfisvernd, skiptir hún þig máli ?

Já umhverfis­vernd skiptir mig miklu máli og á að skipta okkur öll máli. Við sem neytendur höfum vissulega áhrif. Við sjáum það að með því að neytendur vilja kaupa minna af plast umbúðum að fyrirtæki eru að breyta þessu þótt það sé að gerast hægt. Nú í dag er fólk að kaupa eyrnapinna úr pappír í pappa­boxum en ekki plast­pinna í plastboxi. Þetta skiptir auðvitað allt máli. Við reynum að vera meðvituð um fyrirtæki sem við verslum við, snið­göngum ákveðin fyrirtæki sem fara ekki vel með starfs­fólkið sitt til dæmis eða eru með slæma sögu. Við notum taubleyjur, borðum plöntu­miðað fæði, notum snyrti­vörur sem koma í umhverfis­vænum pakkningum, hugsum um kolefnis­sporið sem varan þarf, sleppum óþarfa að mestu og allt þar fram eftir götunum. Hins vegar er mikilvægt að muna að enginn getur allt, allir geta eitthvað og saman getum við breytt heilmiklu.

Hreyfing og hollt mataræði. Hvernig spilar það saman?

Við vitum auðvitað öll að það er mikilvægt að hreyfa sig og borða hollan og næringa­ríkan mat. Ég held að það sé mikilvægt að finna samt sinn eigin takt í þessu og vera ekki að hlusta á hvað megrunar­menningin er að segja við okkur. Hreyfing sem hentar okkur er sú hreyfing sem okkur finnst skemmtileg og veitir okkur gleði. Það sama á við um matinn.

Hér er instragramsíða Alexöndru. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning