Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Setur fyrirvara við auknar valdheimildir lögreglunnar: „Sá sem lifir án frelsis er lifandi dauður“

Lögreglan að störfum.
Lög­reglan að störfum. Mynd: Lára Garðarsdóttir

Ritstjóri Wikileaks, Kristinn Hrafnsson er ansi harðorður um hryðjuverka­málið og varar við aukinni vald­heimild til löggæslu­embætta í nýjustu Facebook-færslu sinni. Segir hann lögregluna áður hafa verið misnotaða og blekkta í „pólitískri aðför“.

Kristinn Hrafns­son. Mynd / EPA

„Vegna stóra hryðjuverka­málsins er rétt að rifja upp gamla hryðjuverkaógn sem reyndist full­kominn tilbúningur, því sömu aðilar koma að hluta við sögu. Vopna­búrið stóra sem lagt var hald á dögunum og enginn fær enn að vita hvort tengist beint eða óbeint föður Ríkis­lögreglu­stjórans, fannst í húsnæði í umsjá lögmanns, hvers þekktasta lögmanns­verk síðustu misseri var að vera Sigurði Þórðar­syni (a.k.a hakkara) til ráðgjafar í ferð til USA þar sem skjólstæðingur hans gékk frá vitnis­burði og friðhelgis­samkomulagi við þarlent dómsmála­ráðuneyti og Alríkis­lögregluna FBI. Þetta var hluti af pólitískri aðför að Julian Assange.

Sigurður þessi slátraði eigin vitnis­burði að vísu síðar í blaða­viðtölum við Stundina sem vakti heims­athygli. Þessi Sigurður var notaður í aðgerð árið 2011 þegar sömu bandarísku aðilar reyndu að blekka Ríkis­lögreglu­stjórann og Ríkis­saksóknara til tálbeitu­aðgerðar gegn Julian Assange á grund­velli hættu á hryðjuverka­ársás á íslenska tölvu­innviði. Sú hryðjuverkaógn var yfirvarp og reyndist upploginn tilbúningur. Hvorki þáverandi Ríkis­lögreglu­stjóri (forveri dóttur vopna­salans) né Ríkis­saksóknari virtust átta sig á þessum hráskinna­leik en það gerði hins vegar þáverandi löggæslu­mála­ráðherra, Ögmundur Jónasson og batt enda á bullið.

Vert er að setja stóra fyrirvara við auknar vald­heimildir til löggæslu­embætta sem hafa svo lélega greiningar­deildir innanborðs að þau átta sig ekki á því þegar verið er að misnota þau og blekkja í pólitískri aðför. Nema ef vera kynni að menn tóku þátt í misbeitingunni vitandi vits. Það er skelfileg tilhugsun. Það er einnig varasamt að veita lögreglunni aukin völd til réttinda­skerðingar þegar ljóst er að þau eru nú undir pólitískri yfir­stjórn sem heldur uppi vörnum fyrir misbeitingu valds lögreglu og saksóknara vegna þjónkunar við eitt stærsta fyrirtæki landsins.

Ég hef áður bent á farasa­kenndan blæ á stóra hryðjuverka­málinu og þessi viðbót í sögu­línuna styrkir það frekar en hitt. Það er einnig vert að athuga að hægt er að nota hryðjuverkaógn sem hreðjatak á almenning og stór­skerða réttindsi hans.Það óttast ég meir en margt annað.Sá sem lifir án frelsis er lifandi dauður.Sú stefna sem nú er rekin af yfir­völdum að magna upp ótta hjá almenningi gengur þvert á skyldur ríkis­valdsins. Því ber að tryggja almenn lífsgæði og öryggi. Óttinn er ein versta lífsgæða­skerðing sem hægt er að hugsa sér og skammarlegt að magna hann upp af aðilum sem eiga að hafa það hlutverk að slá á hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning