Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Þekktur maður hélt vöku fyrir nágrönnum með kynlífslátum: „Þolinmæðin okkar er algjörlega á þrotum“

Ath. Ljósmyndin er ekki tekin úr svefnherbergi mannsins. Mynd / Envato Elements
Ath. Ljós­myndin er ekki tekin úr svefn­her­bergi manns­ins. Mynd / Envato Elements

Svo mikil voru kynlífs­lætin í þekktum einstaklingi sem flutti í blokk í Garðabæ, að nágrannarnir sáu sig knúna til að senda manninum kvörtun í formi útprentaðs blaðs. Þar er hann beðinn um að taka tillit til fólks í blokkinni og reyndar íbúum næstu blokkar einnig, slík voru lætin.

Mannlífi barst skjáskot af kvörtunar­bréfi sem stílað er á mann sem ekki er þörf á að nafn­greina. Þar kvarta nágrannar hans í blokk sem hann flutti nýverið í, vegna hamagangs og láta úr svefn­herbergi mannins, en lætin voru það mikil að fólk átti erfitt með svefn í blokkinni og næstu blokk einnig.

„Það er alltaf leitt að þurfa að gera athuga­semdir við hegðun fólks en þolinmæðin okkar er algjör­lega á þrotum. Þú ert væntanlega vanur að búa í einbýlis­húsi og ekki þurft að taka tillit til nágranna þinna en nú býrðu í gamalli og hljóð­bærri blokk og þá er nauðsynlegt að vera meðvitaður um að valda öðrum íbúum ekki ónæði. Hér má nánast heyra orðaskil milli blokkar 8 og 10, milli hæða og veggja, svo þú áttar þig vonandi á hljóðbærninni“ Svo byrjar bréfið og heldur áfram: „Síðan þú fluttir er tvennt sem gerir íbúum lífið leitt.“

„Gaura­gangur í rúmi og kynlífs­hljóð eru að svipta fólki svefni. Það er bæði vaknað upp við þennan hamagang kvölds, nætur og morgna. Hér býr veikt fólk, gamalt fólk og fólk sem þarf að vakna snemma í vinnuna.“

Svo er það hitt vanda­málið:

„Þegar þú hefur börnin hjá þér eru oft mikil læti, öskur og eltinga­leikir, slíkt glymur um alla blokk.“

Í niður­laginu er hann beðinn um að laga þetta. „Þú gefur þig út fyrir að vera heiðar­legan og góðan mann. Við óskum þess að þú sýnir okkur tillitssemi varðandi þessi atriði og gerir ráðstafanir til að valda ekki slíku ónæði.

Nágrannar í blokk 8 og 10.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt