Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Brynjar tjáir sig loks um Namibíufundinn: „Þáðu þau boðið og úr varð fundur“

Brynjar Níelsson.
Brynjar Níelsson.

Brynjar skýtur föstum skotum að Samfylkingunni þar sem hann fer lauslega yfir fund sem hann átti við namibíska embættis­menn.

Brynjar Níelsson, fyrrum þingmaður Sjálfstæðis­flokksins og núverandi aðstoðar­maður dómsmála­ráðherra hefur nú loksins sagt nánar frá fundi sem hann átti með embættis­mönnum frá Namibíu. Gerir hann það á Facebook en í færslunni skýtur hann bylmings­fast á Samfylkinguna og þá sér í lagi Helgu Völu Helga­dóttur.

„Nú er aðal­fréttaefnið stóri fundur aðstoðar­manns dómsmála­ráðherra með aðstoðar­manni forsætis­ráðherra Namíbíu og einhverjum embættis­mönnum í fylgdar­liði hans. Kannski var hann aðstoðar­forsætis­ráðherra, ég man það ekki. Og auðvitað var það þingmaður Samfylkingarinnar sem reynir að þyrla upp moldviðri út af engu. Alltaf verið að setja upp leikrit enda sumir þar menntaðir í slíkum fræðum.“

Því næst fer Brynjar yfir ritdeilur sem hann átti í við Andra Snæ Magnason og Svein Andra Sveinsson um fundinn dular­fulla.

„Upphafið að umræðu um þennan fund var að rithöfundurinn úti í bæ var að hneykslast á mér embættis­manninum. Ég upplýsti rithöfundinn úti í bæ að ég væri ekki embættis­maður. Þá kom inn í umræðuna stjörnu­lögmaðurinn og upplýsinga­fulltrúi Viðreisnar á samfélags­miðlum og vildi meina að maður sem ætti fund með namibíu­mönnum sem voru hér í embættis­erindum hlyti að vera einhvers konar embættis­maður. Ég maldaði í móinn og sagði að þetta fólk hafi ekki verið í embættis­erindum hér á landi enda bankað upp á si sona og enginn vissi af þeim. Síðan þusum við eitthvað um hvort þessi fundur hafi verið í embættis­erindum.“

Næst fer Brynjar yfir forsögu fundarins og gerir lítið úr vanga­veltum Samfylkingarinnar. Virðist aðstoða­maðurinn ekki vita fyrir víst hverslags fundur þetta hafi verið.

„Forsaga þessa fundar var að þetta ágæta fólk mun hafa verið hér í tvo daga og heimsótt hina ýmsu ferðamanna­staði. Enginn vissi af þeim þegar þeir bönkuðu upp á hjá forsætis­ráðherra og óskuðu eftir fundi um til að ræða stöðu Samherja­málsins. Forsætis­ráðherra hafi þá bent á dómsmála­ráðherra enda heyrði mála­flokkurinn undir hann. Var haft sambandi við dómsmála­ráðuneytið en þeim tjáð að ráðherrann væri ekki viðlátinn. Þau gætu talað við aðstoðar­mann hans ef þau vildi. Þáðu þau boðið og úr varð fundur.Það má vel vera að namíbíumennirnir hafi litið svo á að þessi fundur væri í embættis­erindum. Lang­einfaldast er þá fyrir Samfylkingar­fólk og þau í Viðreisn að spyrja bara þetta fólk frá Namíbíu út í það og hvað fór fram á fundinum. Ég mun ekki segja frá hvað gerðist á fundinum enda veit ég ekki fyrir víst í hvort þau voru í embættis­erindum eða litu á þetta sem óformlegan fund. En ég skal fyrstur segja frá fundinum og efni hans ef namíbíumennirnir eru sáttir við það. Ég hef engan áhuga á að leyna frétta­menn og almenning upplýsingum.“

Í lokaorðum færslunnar getur Brynjar ekki neitað sér um að skjóta á Helgu Völu.

„Sjálfur held ég að það sé nánast óþekkt að fólk í embættis­erindum banki upp á í stjórnar­ráðinu nýkomið frá Gullfossi og Geysi og reiknar með að fá fund með ráðherra. Í besta falli er hægt að kalla slíka fundi óformlega. En ég bíð spenntur eftir hvað vel menntuðu leik­ararnir í Samfylkingunni nái að spinna langt leikrit úr þessum fundi.“

Þess má geta að enn hefur dómsmála­ráðuneytið ekki svarað spurningum Mannlífs um innihald fundarins og hvort minniblað sé til um hann. 

Sjá einnig: Dómsmála­ráðuneytið svarar ekki spurningum um leynifund Brynjars og saksóknara Namibíu

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið