Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Brynjar baunar á skáldin: „Lifa í eigin heimi og fara vart úr húsi nema á kaffihús til að kvarta“

Brynjar Níelsson.
Brynjar Níelsson.

Stjórn­mála­maðurinn Brynjar Níelsson er óhræddur við að tjá sig um menn og málefni. Líka rithöfunda:

„Frá barns­aldri hefur ég stúderað íslenska rithöfunda, einkum þá sem telja sig skáld góð og hafi eitthvað meira að segja okkur en góða sögu. Sumir geta auðvitað skrifað skemmtilega og fróðlega sögu en þegar þeir reyna að leiðbeina okkur almúganum, eins og algengt er, kárnar gamanið.“

Brynjar bætir við að „þeir virðast eiga það sameiginlegt flestir að lifa í eigin heimi og fari vart út úr húsi nema á kaffihús til að kvarta hver við annan yfir óréttlæti heimsins og almennu skilnings­leysi í þeirra garð því þeir trúa að engar almennilegar bækur verði skrifaðar nema skatt­greiðendur borgi þeim laun. Alla tuttugustu öldina má segja að flestir rithöfundar og skáld, sem fengu gefnar út bækur, hafi helgað sig baráttu fyrir skaðlegum pólitískum málstað og í besta fallið varið hann eða haft samúð með honum. Afstaða þeirra breyttist lítið þótt sagan væri búin að berja þá í hausinn áratugum saman. Veru­leikinn oft mjög fjarlægur og strúts­aðferðin að stinga höfðinu í sandinn mjög áberandi. Óraunsæir sveim­hugar geta verið skemmtilegir en sjaldan gagnlegir og oft skaðlegir.“

Segir einnig að „á tímum samfélags­miðla erum við öll orðin rithöfundar og mér sýnist að Jón og Gunna skrifi nú til dags meira að viti en svokölluð stórskáld. Í saman­burði má segja að sjón sé sögu ríkari. En ég kann alltaf að meta þá sem hafa skoðun og tjá hana. Skiptir engu máli þótt mer finnist þær bæði vitlausar og skaðlegar. Tjáningar­frelsið er nefnilega lykil­atriði í frjálsu og lýðræðis­legu samfélagi; það ættu rithöfundar og stórskáld að vita best allra enda forsenda fyrir tilvist þeirra.“

Að lokum nefnir Brynjar að „nú um stundir hafa mál hins vegar þróast þannig að rithöfundar og stórskáld hafa verið fremstir í flokki í útilokunar­menningu gagnvart þeim sem eru með „rangar“ skoðanir. Þeir eru því áberandi í hópi svokallaðra aktivista, sem er samheiti yfir þá sem telja sig ekki þurfa að fara eftir lögum og reglum því eigið réttlæti er ofar þeim. Ef ég man rétt áttu allir helstu harðstjórar síðustu aldar það sammerkt að vera í sérstakri baráttu fyrir réttlæti. Þegar það er skoðað er sjón sannanlega sögu ríkari.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning