Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Elísabet er hagsýn og varast freistingarnar: „Ég versla bara það sem er á innkaupalistanum“

Elísabet Ósk Sigurðardóttir er ótrúlega hagsýn og mjög sniðug í matargerð
Elísabet Ósk Sig­urð­ar­dóttir er ótrú­lega hag­sýn og mjög sniðug í mat­ar­gerð

Neytandi vikunnar, Elísabet Ósk Sigurðar­dóttir er 46 ára gömul, fædd og uppalin í Reykjavík en hefur búið í Danmörku síðan 1996. Hún á 2 syni, 28 ára og 19 ára. Elísabet nýtur þess að veita öðrum innblástur og aðstoð með sparnaðarráð. Hún, ásamt vinkonu sinni, stofnuðu Facebook síðu fyrir mörgum árum síðan sem heitir Ódýrar matar­uppskriftir og sparnaðarráð. Hún sér þó ein um hana núna. Fyrir fjórum mánuðum síðan opnaði hún Instagram síðu Elisabets foods corner,  með sínum eigin matar­uppskriftum og hefur fengið tæplega 5900 fylgjendur á þessum fjórum mánuðum sem er nú bara ótrúlegt.

Hún notar Airfryer mjög mikið í sinni matargerð sem sparar bæði tíma og rafmagn. Þess  utan finnst henni maturinn betri með þeirri aðferð. Hún hefur lengi deilt sínum hugmyndum í Airfryer grúppum á Facebook og tók eftir að eftir­spurnin var mjög mikil svo hún stofnaði einnig tvær Instagram síður með sínum eigin Airfryer uppskriftum. Hún skrifar þó einnig tíma og gráður í venju­legum ofni í uppskriftunum sínum svo þær eru ekki einungis bundnar við Airfryer notkun. Síðurnar heita Airfryer uppskriftir  og Airfryer Danmark . Elísabet hefur aldrei starfað við matargerð og hefur aldrei getað fylgt uppskriftum. Nú er hún farin að þróa sínar eigin.

Hvernig sparar þú í matarinnkaupum?

Ég hef alltaf verið mjög sparsöm og sniðug í matar­innkaupum sem kemur sér mjög vel á þessum tímum. Hér í Danmörku og í fleiri löndum finnst app sem heitir Too good to go þar sem maður getur pantað poka með vörum sem eru á síðasta söludegi og er ótrúlega sniðugt koncept. Ég panta aðallega pokana sem innihalda ávexti og grænmeti sem ég nýti mjög vel í matargerð minni. Í byrjum hvers mánaðar skipti ég ákveðinni upphæð niður í viku­upphæðir og það er það sem ég hef þá viku til að versla fyrir. Ég er með lista yfir allt sem ég á í frysti, ísskáp, skápum og skúffum og geri matarplan út frá því sem ég á og það sem ég fæ í grænmetis­pokanum mínum.

Ég fer sjaldan út að versla og versla bara það sem er á innkaupa­listanum sem er ágætis sparnaður þegar að maður sleppir þessum skyndi freistingum í búðinni. Hugsa einnig mitt matarplan út frá því að þurfa að henda engu. Ef ég til dæmis þarf að nota hálfa dós af sýrðum rjóma í eina máltíð í vikunni verður restin notuð í aðra máltíð seinna í vikunni. Ég hef einnig minnkað magnið af kjöti heilmikið og bæti t.d. fínhökkuðu grænmeti út í alla rétti með hakki, það endar oft í uppskriftum með t.d. 250 grömm af hakki og 250 grömm af grænmeti sem dugar fyrir þrjá fullorðna.

Endurnýtir þú? Ertu með ráð til annarra?

Ég endurnýti mjög mikið og hef til dæmis búið til rasp úr brauð­restum og kartöflu- og gulrótar­skræli sem var notað í að gera hrísgrjóna­kúlur í raspi með afgöngunum af hrís­grjónum frá deginum áður. Einnig hef ég oft hirt hluti sem fólk ætlar að henda, hreinsa það, jafnvel mála og gef því þar með nýtt líf. Hef meðal annars gert dótakassa, stól, kerta­stjaka og þess háttar með þessari aðferð.

Hvað hefur þú í huga þegar þú þegar þú kaupir mat, fatnað og gjafir?

Ég er mjög meðvituð um verð og fer til dæmis alltaf eftir kíló- og lítra­verði í matar og drykkjar­innkaupum. Stundum bjóða búðirnar upp á stóra kjötpakka en ef maður kíkir á kíló­verðið er það oft dýrara en minni pakkar.

Ég hef til dæmis gefið systur minni jóla­daga­tal

Vinsælustu gjafirnar sem ég hef gefið eru yfirleitt persónu­legu gjafirnar sem kosta lítið annað en tíma, ást og umhyggju. Ég hef til dæmis gefið systur minni jóla­dagatal þar sem hún átti að draga einn seðil á dag þar sem ég hafði skrifað eitthvað uppbyggjandi eða fallegt um hana og okkar samband. Einnig hef ég útbúið dagatöl, bækur með minningum, litlar sögur um líf og samband mitt og móttak­andanna. Annars finn ég góð tilboð á því sem ég veit að ástvinum mínum vantar. Ég verð að viðurkenna að ég kaupi eiginlega aldrei föt en ef ég kaupi föt er það yfirleitt í Rauða kross­búðum og þess háttar. Ég hef einnig fengið mikið af fötum frá systur minni og erfði mikið af fallegum fötum eftir móður mína.

Hverju átt þú erfiðast með að draga úr kaupum á?

Ég hef alltaf verið svo mikill sparigrís að ég hef ekki þurft að draga það mikið úr kaupum mínum en væri nú til í að geta splæst aðeins meira á okkur inn á milli.

Skiptir umhverfisvernd þig máli?

Til að hugsa um umhverfið jafnframt því að spara hef ég minnkað kjöt­neysluna og er í augna­blikinu að prófa mig meira fram í uppskriftum án kjöts. Hef til dæmis útbúið margar nýjar uppskriftir af grænmetis­súpum sem eru bæði hollar og saðsamar. Einnig hef ég minnkað akstur bifreiðar mjög mikið.

Mín aðferð með að skrifa allt innihald frá frysti og þess háttar niður, gera matarplan út frá því og skipuleggja getur verið krefjandi og tímafrekt í byrjun en marg borgar sig í lengdina. Hjá mér endar þetta oft í keppni um að hafa sparað meira þessa viku en síðustu og það er svo góð tilfinning að sjá sparnaðinn vaxa þó að sé stundum ekki nema lítil upphæð í einu.

Að lokum deilir Elísabet með okkur tveimur hollum og góðum uppskriftum.

Mexíkönsk minifarsbrauð með hrís­grjónum, salati og mexíkó ostasósa.

Mexík­anskt mini fars­brauð.

Taco farsbrauð.
500 grömm hakk.
250 grömm fínt hakkað grænmeti.
50 grömm taco krydd.2 egg.
2 dl haframjöl.
1 hvítlauksrif.
Hrærið öllum hráefnum vel saman og mótið lítil farsbrauð.

Gefið þeim 20 mínútur á 180 gráðum í airfryer eða 30 mínútur á 180 gráðum í forhituðum blástursofni.Ostasósa.1 Mexíkó ostur.5 dl rjómi.1 kjúklinga bouillion teningur.Rífið ostinn fínt og bræðið hann í rjómanum. Bætið kjúklinga teningnum í og fáið sósuna upp að sjóða, skrúfið niður og látið hana malla í ca 5 mínútur.

Baunasúpa
500 grömm frosnar baunir.

Bauna­súpa

2 dl spínat.
1 púrra.
1 laukur.
1 hvítlauksrif.
6 dl vatn.
1 og hálfur hænsna teningur.
2 msk rjóma­ostur.
1 tsk þurrkað timian.
salt, pipar og sítrónu­safi eftir smekk.

Hakkið lauk, hvítlauk og púrru, komið því í pott og steikið í smá olíu í 3-4 mínútur. Bætið vatni, baunum,tening og timian við grænmetið. Fáið súpuna upp að sjóða, lækkið hitann og látið hana malla í 10 mínútur. Hrærið rjómaosti og spínat út í, hellið súpunni yfir í blandara og látið hann keyra þangað til súpan er orðin fín og klekklaus. Hellið súpunni aftur yfir í pottinn og bragðið til með salt, pipar og sítrónu­safa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning