Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

„Langalangamma mín tók sitt eigið líf“ – Hildur spyr hvort sorg og kvíði gangi í ættir

Hildur Eir Bolladóttir
Hildur Eir Bolla­dóttir

„Langa­langamma mín tók sitt eigið líf. Hún hét Guðrún, var fædd 9.maí árið 1839 en drukknaði í Köldu­kvísl á Tjörnesi á miðju sumri árið 1895. Faðir minn, afkomandi hennar minntist aldrei, að mér vitandi, á þessi örlög langömmu sinnar sem honum hlýtur þó eiginlega að hafa verið kunnugt um miðað við hversu fróður hann var um sínar ættir.“

Þetta skrifar Hildur Eir Bolla­dóttir, prestur í Akureyrar­kirkju, í pistli sem hún birtir á vef sínum. Þar fer hún yfir harmsögu ættar sinnar. Flestir Íslendingar sem leggjast í ættfræði uppgötva, líkt og Hildur, mikla sorg. Hildur veltir því fyrir sér hvort sorgin erfðist. Hvort eitthvað sem forfeður þínir urðu fyrir valdi fóbíu þinni.

Hildur heldur áram og segir: „Þegar pabbi var á fjórða aldursári eignaðist hann bróður sem lést nokkurra mánaða gamall úr veikindum sem ég hef aldrei fengið frekari útlistun á, líklegast hefur það verið hin svokallaða barna­veiki sem var býsna skæð. Litla drengnum var gefið nafn en ég fæ hvergi stað­festingu á því hvort hann hafi heitið Ingvi eða Ingi en annað hvort nafnið var það. Systir pabba sem er sú eina er eftir lifir af uppruna­fjölskyldu föður míns  segir mér að í raun hafi aldrei verið talað um bróður hennar sem lést í frum­bernsku en skuggi sorgarinnar grúfði yfir lífi þeirra ömmu og afa og pabba. Ekkert þeirra náði í raun háum aldri þó svo að pabbi hafi vissulega eignast mikla hamingju og ríkidæmi síðar meir í eiginkonu og börnum. Amma varð hjartveik og lést um sextugt og afi og pabbi veiktust einnig báðir um sextugt en af heila­bilun.“

Hún segir föður sinn hafa tekist á við sorg með sínum hætti. „Faðir minn var næmur og listrænn maður en átti á sama tíma ekki gott með að tjá eigin líðan í orðum og forðaðist fremur að ræða sársauka­fullar minningar eða upplifanir, í stað þess að ræða slíkt stóð hann frekar á fætur og tók að endurraða bókunum sínum í hífjafna röð þannig að eigi skeikaði milli­metrum milli Laxness og Gunnars Gunnars­sonar í brúnu tekk­hillunni sem þakti vegginn inn í síma­herbergi. Þetta var andsvar pabba við sárs­aukanum.“

Hún rifjar upp þegar faðir hennar varð æfur að frétt að hún hefði keyrt traktor. „Aðeins einu sinni man ég þó eftir að hann felldi varnir í minni návist en þá hafði mér verið falið fjórtán ára gamalli að aka dráttarvél í skógræktar­vinnu í sveitinni og kom hróðug heim í hádegis­verð uppveðruð af afrekum mínum af að bakka með kerru milli þess sem ég tróð upp í mig kæfu­brauði og mjólk. Í miðri frásögn stoppaði faðir minn mig af gráfölur í framan og sagði orðrétt „ Hildur Eir þú mátt ekki keyra þennan traktor, ef eitthvað kemur fyrir þig verð ég geðveikur.“   Já ég segi orðrétt vegna þess að hvorki fyrr né síðar heyrði ég föður minn nota þetta orðalag. Hann var heldur ekki maður sem var eitthvað að kjá framan í mann og segjast elska mann eða þar fram eftir götunum þótt hlýjan og ástin hafi svo sannarlega skinið í gegn án orða.  Því reyndi ég ekkert að malda í móinn heldur gekk niðurlút til verk­stjórans og tjáði honum að það væri föður mínum fremur á móti skapi að ég keyrði þennan traktor eða í raun alveg á móti skapi.“

Hún spyr svo að lokum hvort sorg og kvíði gangi í ættir. „Hæfi­leikar eru ekki það eina sem erfist heldur líka óunnin sorg og kvíði. Af hverju erum við mörg með einhverjara fóbíur eða forðunar­viðbrögð sem við höfum enga röklega skýringu á? Getur verið að svarið liggi í sögunni okkar, sögu sem við jafnvel ekki þekkjum, sögu sem var aldrei sögð vegna að það var of erfitt, of sárt?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá