Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Egill Helgason um Háskólabíó: „Ævintýrahöll – og einhver magnaðasta bygging á Íslandi“

Ævintýrahöllin.
Ævin­týra­höllin.

Háskólabíó á sérstakan stað í hjörtu margra kvikmynda­áhugamanna enda er stóri salurinn þar með þeim fallegri á landinu. Nú hefur verið ákveðið að hætta kvik­mynda­sýningum í húsinu. Egill Helgason fjölmiðla­maður er einn þeirra áhuga­manna sem þykir vænt um bíóið.

Í nýrri færslu á Facebook skrifar Egill um gamla Háskólabíó og rifjar upp ferðir þangað í æsku. Segir hann að gamla Háskólabíó lifi „í minningunni sem glæsilegasti kvik­myndasalur landsins og þótt víðar væri leitað.“

Færsluna má lesa hér:

„Upphafið að ást minni á kvik­myndum var Háskólabíó. Þessi stórfeng­lega bygging reis upp úr melunum innan um skólana sem ég gekk í: Hagaborg, Melaskóla, Hagaskóla. Ég hef varla verið nema svona sjö ára þegar ég fór að venja komur mínar í Háskólabíó. Best fannst mér að fara einn á fimm­sýningar og eiga næstum allan salinn. Það voru alls konar myndir í boði og ekki allar frábærar (Carry On!) – en ég man líka eftir auka­myndunum sem voru á undan sjálfri bíósýningunni. Þær komu frá Bretlandi og sýndu yfirleitt drottningar­móðurina opna blóma­sýningar. Ég er nátt­úrlega að tala um stóra salinn í Háskóla­bíói – hann er alltaf jafn tilkomu­mikill með sínu risastóra tjaldi. Seinna var reist nýbygging við Háskólabíó. Hún er eiginlega ekki verðug þess að standa við hlið gamla hússins og bíósalirnir sem þar eru bjóða ekki upp á mikil þægindi eða sýningar­gæði. Því er skilanlegt að hætt sé að sýna bíó þarna vesturfrá, aðsóknin hefur jú minnkað mikið. En hið gamla Háskólabíó lifir í minningunni sem glæsilegasti kvik­myndasalur landsins og þótt víðar væri leitað. Ævintýra­höll – og einhver magnaðasta bygging á Íslandi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt