Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Fyrsta Regnbogahátíðin á Austurlandi: „Vonum að sem flestir komi og taki þátt“

Tara Tjörvadóttir
Tara Tjörva­dóttir Mynd: Facebook

Regnboga­hátíð hinsegin fólks á Austur­landi verður haldin á morgun en það er í fyrsta skipti sem slík hátíð er haldin á Austur­landi. Félagið Hinsegin Austur­land stendur fyrir hátíðinni en klukkan 17 verður dagskráin formlega sett á planinu við Hús Handanna á Egils­stöðum.

„Við gerðum þetta reyndar í fyrra en það var bara fyrir stjórnina og vini en nú förum við alla leið og vonum að sem flestir komi og taki þátt,“ segir Tara Tjörva­dóttir, formaður Hinsegin Austur­lands í samtali við Austur­frétt.

„Þaðan förum við saman að göngustíg við Lands­bankahúsið þar sem við höfum fengið leyfi til að mála regnboga­litina á gangstéttina. Það gerum við saman og leyfum öllum að grípa í pensil sem vilja. Að því loknu hefst gangan sjálf upp Fagradals­braut og alla leið inn í Tjarnar­garðinn. Þar verður ýmislegt skemmtilegt í boði fyrir alla fjöl­skylduna auk þess sem Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnu­markaðs­ráðherra flytur ávarp auk annarra. Svo lokar Daníel Arnarsson, söngvari, dagskránni með gleði­bombu,“ bætti Tara við.

Segir Tara ennfremur að félagið ætli sér aukreitis að vera með dagskrá samhliða LungA á Seyðis­firði um helgina og standa vonir til að Hinsegin Austur­land verði einnig með dagskrá á Fáskrúðs­firði helgina 22-24 júlí en er að ekki alveg frágengið að því er fram kemur á vef Austur­fréttar.

Fram kemur í fréttinni að gleði­göngu hafi farið fram undan­farin ár á Seyðis­firði á sama tíma og Gay Pride í Reykjavík en slík ganga hefur ekki verið haldin áður á Egils­stöðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Annars staðar má víða búast við skúrum eða slydduéljum
Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Landið

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heilluðust af íslenska hálendinu

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp