Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Ingólfur og Ingvar gengu yfir til Póllands: „Búnir að vera í 16 tíma á ferðinni“

RÚV skjáskot: Ingólfur í Úkraínu í dag
RÚV skjá­skot: Ingólfur í Úkraínu í dag

„Við erum búnir að vera hér Pól­lands­meginn frá því klukkan fjögur í morgun. Erum komnir í her­bergi hjá vinum vina og erum búnir að ná að sofa í nokkra klukku­tíma,“ sagði Ingólfur Bjarni Sigfússon, frétta­maður RÚV í viðtali við Morgun­útvarpinu á Rás 2 í morgun.

Er hann ásamt Ingvari Hauki Guðmunds­syni tökumanni, kominn yfir til Póllands eftir að hafa verið staddir í Úkraínu þaðan sem þeir fluttu fréttir.

Tóku þeir þá ákvörðun að fara fótgangandi restina af ferða­laginu og biðu við landamæri Póllands í margar klukku­stundir en alls gengu þeir 32 kílómetra í gær.

Sagði Ingólfur að aðstæður hefðu verið furðu góðar miðað við allt saman en sjálfboða­liðar höfðu sett upp súpu­eldhús á nokkur hundruð metra fresti til þess að reyna að huga að fólkinu í bílunum.

Þegar komið var að landa­mærunum voru aðstæður þó breyttar og ekki góðar að hans sögn. Fólki er þar skipt niður í tvær raðir en í aðra röðina fara konur, börn, gamalt fólk og erlendir ríkis­borgarar en í hina fara úkraínskir karlar á aldrinum 18 til 60 ára sem fá ekki að fara úr landi vegna herkvaðningar.

„Þetta tók allt dá­góðan tíma en þegar yfir lauk, frá því að við lögum af stað fót­gangandi og þar til við komum yfir til Pól­lands, þá vorum við búnir að vera í 16 tíma á ferðinni,“ sagði Ingólfur og bætti við að eldra fólk hafði verið orðið mjög þreytt eftir ferða­lagið. Tilfinning hans væri sú að áhyggjur fólks á þessari stundu væru hvort að ástvinir þess myndu lifa af stríðið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

„En svo lenti ég í því að eignast mann“

Ofurkrúttleg íbúð í Þingholtunum komin á sölu
Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá