Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Daníel átti varla til orð á Aktu Taktu: „Er þetta ekki brandari?“

Daníel nokkur, viðskipta­vinur Aktu Taktu, var ekki par hrifinn af þjónustunni á skyndibita­staðnum þegar hann leit þar við í vikunni. Að hans sögn gekk honum afar erfiðlega að fá matinn sinn afgreiddan og engar sárabætur fengust þrátt fyrir hina löngu bið.Raunar fékk Daníel samt á endanum bætur og greinir hann frá þeim í færslu inni í fjölmennu samfélagi á Facebook, Vertu á verði – eftirlit með verðlagi. Þar segir hann:„Maður fór með frúnni á Aktu Taktu í gær. Eftir að hafa fengið vitlausa pöntun og pöntunin svo gleymst þá barst máltíðin 35 mínútum síðar þegar búið var að loka staðnum. Þá sagði afgreiðslu­maðurinn: „Sorry about this it’s my mistake but I gave you extra ketchup because of this.“ Takk,“ segir Daníel kaldhæðinn. Ekki stendur á viðbrögðunum við færslunni og eru flestir þeir sem þar tjá sig undrandi yfir þjónustunni. Aron skilur til að mynda bara ekkert í þessu. „Er þetta ekki brandari?“ spyr hann. Gísli telur að við þessu hefði mátt búast. „Hver fer á aktu taktu fyrir góða upplifun?“ spyr Gísli.

Atli hefur gefist upp. „Ég er löngu hættur að versla við þetta fyrirtæki sem betur fer,“ segir Atli ákveðinn. Og Pétur virðist hafa upplifað svipaða hluti á skyndibita­staðnum. „Ég fór þangað um daginn. Töluðu ekki íslensku, áttu ekki kók tvær heim­sóknir í röð, sjúklega löng bið, mældu gegn því að fá pylsu því það tæki svo langan tíma, gat ekki fengið kokteisósu í stað hamborgara sósu og kunnu ekki að gefa mér kvittunm,“ fullyrðir Pétur.

Sigurlaugur kemur fyrir­tækinu hins vegar til varnar. „Ég hef alltaf fengið fram­úrskarandi þjónustu á Aktu Taktu þegar ég er í borginni,“ segir Sigurlaugur.

Aktu Taktu bregst við

Mannlíf leitaði viðbragða frá eiganda Aktu Taktu en það er fyrir­tækið Gleðipinnar. Markaðs­stjóri fyrir­tækisins, Jóhannes Ásbjörnsson segir að fyrir­tækinu þyki leiðinlegt að heyra af mistökunum og bjóða viðkomandi nýja máltíð:

„Vissulega þykir okkur leitt þegar við heyrum af mistökum sem þessum og við munum að sjálfsögðu hafa samband við þennan aðila sem átti í hlut. Hvað viðbrögð starfs­mannsins varðar þá eru þau vissulega ekki hefð­bundin, en lýsa kannski ágætis viðleitni hjá okkar fólki ef maður leyfir sér að vera jákvæður. Tómatsósa er frábær og ágætt að hafa nóg af henni með frönskunum, en við munum bjóða þessum aðila nýja máltíð hjá okkur á Aktu Taktu og vonumst til að sjá hann á staðnum sem allra fyrst.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Héraðs­dómur synjar foreldrum Sólons um vitna­leiðslu

Foreldrarnir vildu fá fram hvað sagt var á fundi sonar þeirra með starfsfólki Icelandair fyrir starfslok hans
Innlent

Biðja um svör eftir að hundar urðu kettinum þeirra að bana

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Pólitík

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Skiptar skoðanir meðal Sjálfstæðismanna um sölu á Landsbankanum

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis