Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Skoðun

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Dómari fór í taug­arnar á borg­ara

Innlent

Ökumaður kærður fyrir að skilja bíl sinn eftir í lausa­gangi

Fólk

Hlýlegt heim­ili með grónum garði í Skerja­firði til sölu

Innlent

Egg og kyn­þátt­a­níð í alvar­legum ásök­unum

Ósáttur við orð Magnúsar um brottflutta Grindvíkinga: „Allur hetjuskapur hverfur með viðhorfi hans“

Eldgosahrina hófst á Reykjanesinu árið 2021.
Eld­gosa­hrina hófst á Reykja­nes­inu árið 2021. Mynd: RÚV-skjáskot

Grind­vík­ing­ur­inn Björn Birg­is­son er allt annað en sáttur við sam­borg­ara sinn, Magnús Gunn­ars­son sem kallar bæj­ar­stjóra Grinda­víkur og þá bæj­ar­búa sem fluttu úr bænum vegna tíðra eld­gosa, lufsur, í nýrri Facebook-færslu.

„Lufsur!

Elsku­legur sam­borg­ari í Grinda­vík til margra ára, Magnús Gunn­ars­son, var að end­ur­birta mynd­band með sér­stakri úttekt og umsögn um bæj­ar­stjóra Grinda­víkur og þá sam­borg­ara sína sem fluttu burtu og eru margir að velta fyrir sér hvort gáfu­legt sé að flytja heim eða ekki.
Margir eru að hug­leiða snjallan milli­leik með því að gera holl­vina­samn­ing við Þórkötlu og máta sig þannig við Grinda­vík að nýju.

Það erum við að gera.“ Þannig hefst Facebook-færsla sam­fé­lags­rýn­is­ins frá Grinda­vík, Björns Birg­is­sonar sem hann birti í gær. Segir hann Magnús kalla bæj­ar­stjór­ann og brott­flutta Grind­vík­inga lufsur:

„Þessi elsku­legi Magnús hefur þá trú á bæj­ar­stjór­anum og brott­fluttum að hóp­inn þann – yfir­gnæf­andi meiri­hluta bæj­ar­búa – kallar hann lufsur.
Hann velur þá drengi­legu umsögn um vel á fjórða þús­und sam­borg­ara sína.
Fram­tíð­ar­horfur þessa elsku­lega Magnúsar fyrir Grinda­vík eru:
„Hér verða senni­lega bara útlend­ingar í fram­tíð­inni, harð­dug­legt fólk. Ekki þessar lufsur sem flýðu af hólmi og sést hvorki tangur né tetur af.“
Síðan veit hann full­vel að „nú móðg­ast ein­hverjir, en hverjum er ekki slétt sama!““
Björn seg­ist ekki telja að nokkur móðg­ist alvar­lega, þar sem fáir taki mark á orðum Magnúsar.

„Held að eng­inn móðg­ist neitt alvar­lega, því ég er þess full­viss að afskap­lega fáir taka mark á orðum þessa elsku­lega Magnúsar, sem af ein­hverjum hvötum telur sig ítrekað þurfa að drulla yfir hluta bæj­ar­stjórnar Grinda­víkur, bæj­ar­stjór­ann og svo eitt­hvað á fjórða þús­und sam­borg­ara sinna, að ekki sé nú minnst á aðra sem komið hafa að mál­efnum bæj­ar­ins eftir rým­ing­una í nóv­em­ber 2023.“

Að lokum segir Björn að hetju­ljóm­inn sem Magnús telji umlykja sig hverfi vegna við­horfa hans til sam­borg­ara sinna og segir hann „ekki neitt aðdrátt­ar­afl“ fyrir þá sem hug­leiða að flytja aftur heim í Grinda­vík.

„Líklega lítur hann á sig sem hetj­una sem ekki hopaði af hólmi, en allur hetju­skapur hverfur með við­horfi hans og skammar­legu fram­ferði gagn­vart öðru fólki.
Mér vit­an­lega hefur ekk­ert af þessu fólki gert þessum elsku­lega Magnúsi nokkurn skap­aðan hlut, en lík­lega sæk­ist það ekk­ert sér­stak­lega eftir sam­vistum við hann eftir þessar köldu kveðjur hans til brott­fluttra sam­borg­ara sinna.
Hann er alla vega ekki neitt aðdrátt­ar­afl fyrir fólk sem enn er að hug­leiða heim­flutn­ing í fram­tíð­inni.
Þvert á móti.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Ingvar yfir­gefur Viðreisn

Ingvar Þóroddsson hefur gengið til liðs við Sjálfstæðisflokkinn og segist nú munu starfa í stjórnarandstöðu.
Pólitík

„Ísland á ekki að vera þekkt sem sölu­staður vændis“

Innlent

Íslend­ingar flykkj­ast á bóka­söfnin sem aldrei fyrr

Innlent

Verð­munur á bök­un­ar­vörum nær 66 pró­sentum milli versl­ana

Innlent

Innlent

Lög­reglan fylgd­ist með ung­linga­drykkju á söng­keppni Verzló

Fimm ökumenn voru grunaðir um akstur undir áhrifum vímuefna og einn var fluttur á bráðamóttöku eftir árekstur á Bústaðarvegi.
Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

Ökumenn í vímu og slags­mál í mið­bænum

Innlent

Halldóra hæf­ari en Björn og Sigríður Elsa

Innlent

Nemendur fá ekki lægra en fjóra í loka­ein­kunn

Innlent

Fór með EES pirr­ing­inn til umboðs­manns