Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Átakanleg saga Erlu: „Eitt kvöldið voru klefadyrnar opnaðar og þá kom hann inn“

Erla Bolladóttir – Ljósmyndari: Kazuma Takigawa
Erla Bolla­dóttir – Ljós­mynd­ari: Kazuma Takigawa

„Eitt kvöldið voru klefa­dyrnar opnaðar og þá kom hann inn. Það var ekkert óvenjulegt.,“ segir Erla Bolla­dóttir í nýju viðtali við Reyni Traustason. „Hann kom oft inn og sat á rúmstokknum og var ýmist að yfirheyra mig eða vera vinur minn. En þarna allt í einu er orðið hljótt og það er rifa á hurðinni. Hann girti niður um sig og þá var hann búinn að setja á sig verju og allt klárt. Ég sat á rúminu með bakið upp við vegginn við höfða­gaflinn. Ég byrjaði að ýta mér nær veggnum en komst ekkert lengra. Hann dró mig niður og lagðist ofan á mig. Það var ekki möguleiki á að ég hefði látið heyrast eitt einasta hljóð í mér af því að ég ímyndaði mér að ég gæti týnt lífinu ef ég hefði gert það og sakað hann um þetta. Ég hefði aldrei þorað að gera það. Þannig að hann athafnaði sig. Hann var kannski búinn að vera í 10-15 mínútur inni í klefanum og þá allt í einu reif hann sig upp og sagði mér að minnast ekki á þetta. Hann gyrti upp um sig og fór svo fram. Svo kom fanga­vörðurinn og læsti,“ segir Erla.

Maðurinn sem hún talar um er lögreglu­maðurinn Sigur­björn Víðir Eggertsson og fullyrðir hún að hann hafi nauðgað sér í fanga­klefanum þegar hún sat í gæslu­varðhaldi í tengslum við rannsókn á Guðmundar- og Geirfinns­málunum.

Erla segir að áður hafi hún beðið um að fá að tala við Örn Höskuldsson, einn aðal­rannsakenda málsins, til að segja honum frá fanga­vörðum sem voru að áreita hana kynferðis­lega. Hún segir að hann hafi orðið illur og sagst ætla að tala við þá en að það hafi haft í för með sér að fanga­verðirnir hafi orðið brjálaðir út í sig. Í viðtalinu segir Erla frá unglings­árin, fyrstu kynnin af eitur­lyfjum, Sævar Ciesielski sem hún á barn með, glæpinn, gæslu­varðhalds­vist, ástina sem hún kynntist í steininum, meinta nauðgun og krabba­meinið. Nálgast má viðtalið í heild sinni í nýju helgar­blaði Mannlífs

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning