Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Eiríkur segist gerendameðvirkur: „Börn sem fremja einelti eru ekki vond“

Eiríkur Örn Norðdahl rithöfundur segist gerenda­meðvirkur í pistli sem hann birtir á vef sínum. Hann segir að næstum alltaf þá séu gerendur ekki illmenni, þó undan­tekningar séu á því. Að hans sögn átti flestir sig á því að börn sem leggja í einelti séu ekki vond í eðli sínu. Eiríkur segir að oft eigi það sama við um fullorðið fólk.

„Ég er haldinn heil­mikilli gerenda­meðvirkni. Eða gerendaempatíu. Ég finn til með þeim sem beita ofbeldi og held að það komi nánast aldrei til af því að því einu að viðkomandi séu vondir – þótt ég reyndar trúi á tilvist svo til hreinnar illsku líka, ég held bara hún sé fremur sjaldgæf. Svo bætist við þetta allt fremur lítil trú á gildi og gagn refsinga – og fremur mikil trú á því að fólk taki oft bara að sér þau hlutverk sem þeim er skipað í (ef þú segir manni alla ævi að hann sé glæpa­maður er hætt við að hann verði það). Stundum held ég að þetta sé bókmenntunum að kenna. Ég hef lesið svo mikið af bókmenntum um gott fólk sem gerir vonda hluti – Glæpur og refsing er uppáhalds­bókin mín. Og hefur alltaf verið sagt að bókmenntir eigi að auka manni empatíu,“ skrifar Eiríkur.

Hann segir að þegar kemur að full­orðnum gerendum þá eigi oft það sama við og þegar börn eru gerendur. „Ég fór að hugsa um þetta í dag út af eineltis­umræðunni. Mér finnst fólk skilja þetta (les: vera sammála mér) þegar það kemur að börnum. Að börn sem fremja einelti – hvort sem það er að hóta skóla­systkinum sínum lífláti eða hreinlega ráðast á þau í stórum hóp – séu ekki vond og það geri takmarkað gagn að refsa þeim. Það þurfi að takast á við þetta á einhvern heild­stæðari hátt – taka utan um alla sem eiga hlut að máli. Bera klæði á sárin. En þegar kemur að full­orðnum finnst mér sú afstaða að einfaldast sé bara að læsa þá inni og henda lyklinum sé að verða vinsælli og vinsælli. Að stinga upp á einhverju öðru – jafnvel bara réttlátri máls­meðferð í samræmi við lög, að sönnunar­byrði sé virt í sakamálum – er þá nefnt gerenda­meðvirkni. Ég er reyndar á því að það sé miklu minni munur á börnum og full­orðnum en við ímyndum okkur gjarnan. Ég er ekki að segja að málefni barna séu eins og málefni barna eða þau eigi að hantera nákvæmlega eins – en mér finnst að sömu gildi eigi að stýra hvorutveggja,“ segir Eiríkur.

Hann segist þó átta sig á því að þetta sé ekki alltaf svo einfalt. „En svo er þetta auðvitað ekki alveg einfalt heldur. Einsog t.d. í þessum málum á næsta skóla­stigi sem hafa verið til umfjöllunar – kynferðis­brot í mennta­skólum – þar sem getur komið upp sú staða að það þurfi að flytja manneskju milli skóla til þess að vernda þolanda í ósönnuðu máli. Og þá verður aftur spurning hvort senda megi geranda í annan skóla eða hvort viðkomandi hafi fyrirgert rétti sínum til menntunar. Því þótt maður finni til með gerendum trompar sú empatía ekki þá empatíu sem maður finnur til með þolendum,“ segir Eiríkur.

Hann segir auk þess vont hvernig mál sem þessi enda oft í skot­gröfum. „Kannski er það sem mér finnst erfiðast í þessum ofbeldis­málum – ef málin sjálf eru frátalin, þau eru sárust – þessi tilhneiging að vilja einfalda umræðuna um þau niður í hálfgert liðasport. Oft er bara einsog dómarinn flauti til leiks og við þjóðfélags­þegnarnir tökum okkur stöðu, okkar gömlu góðu stöðu sem við völdum eða var úthlutað, og svo hjökkum við sama hringinn enn eina ferðina – gerendameðvirknis-öfga­femínista-hannúðar-karl­hatara uppnefnis­rúntinn – án þess að ná neinum sjáanlegum framförum öðrum en að styrkja okkur sjálf í trúnni fyrir næstu umferð. Og þannig dýpka skot­grafirnar ár frá ári.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning