Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Séra Þórir Jökull Þorsteinsson var sjókokkur fyrrum: „Ég hafði eiginlega enga reynslu af matargerð“

„Ég man eftir slæmum veðrum, sjóslysum og mannskaða. Einhvern tímann vorum við langt vestur af landinu í slíku veðri; þá var ég með Víkingi Halldórs­syni á Jóni Jónssyni. Þá sáum við ekki fram á hvalbak á bátnum, bara hvít­fyssandi sjó, og þá reyndum við að halda bátnum upp í vindinn alltaf og ég man ekki betur en að það færust þá bátar úti við Vestfirði,“ segir Þórir Jökull Þorsteinsson, prestur í Noregi, í viðtali við Kolbein Þorsteinsson.

Eins og Kolbeinn segir þá hefur Þórir Jökull marga fjöruna sopið og migið í saltan sjó en áður en hann varð prestur tók hann búfræði­próf og er auk þess með Samvinnu­skólapróf.

Mann munstraði sig á bát í Ólafsvík forðum daga. Hvernig kom það til?

„Það var nú þannig að ungur maður og atvinnu­laus vissi ekki alveg hvert leiðin lá. Þá lá beinast við að prófa að fara á sjóinn og gá að því hvernig það gengi,“ segir Þórir Jökull sem fékk pláss sem kokkur á sjó á báti frá Ólafsvík, Gunnari Bjarna­syni. „Ég var nú kannski svolítið djarfur af því að ég hafði eiginlega enga reynslu af matargerð.“

Á þessum tíma man ég ekki að það hafi verið eitt ein­asta helg­ar­frí allan mars­mánuð.

Þennan vetur reri hann með Ríkharði Magnússyni sem var skip­stjóri á Gunnari Bjarna­syni. „Þetta var mikil vertíð. Við fiskuðum um þúsund tonn þessa vertíð. Við byrjuðum á línu og þá var helmingur áhafnarinnar í landi og helmingurinn á sjó og síðan þegar við byrjuðum á netunum komu allir um borð og neta­vertíðin byrjaði. Á þessum tíma man ég ekki að það hafi verið eitt einasta helgarfrí allan marsmánuð. Það var ekki komið í reglur þá. En þetta var ágæt reynsla og ég á ágætar minningar frá þessari fyrstu vertíð minni í Ólafsvík.“

Það hafa verið viðbrigði fyrir dreng úr sveit að söðla svona fullkomlega um og ekki ráðist á garðinn þar sem hann er kannski lægstur; en Þórir Jökull ólst upp á Ökrum vestur á Mýrum. Hvernig gekk þetta til að byrja með?

Þeir höfðu heyrt að ég byggi til ágætan mat.

„Ég var sjóveikur fyrstu róðrana og þurfti að kasta upp; að hlaupa fram á klósett og kasta upp og svo inn í eldhús og halda áfram matseldinni. Það fyrsta sem ég gat látið ofan í mig var íslensk kjötsúpa sem ég gat eldað og náði mér einhvers staðar í uppskrift að og eftir það var ég aldrei sjóveikur. Svo notaði ég landlegur og brælur til að verða mér úti um uppskriftir; ég talaði svolítið við konurnar á sjóbúðinni í Ólafsvík þar sem ég hafði herbergi. Ég spurði þær hvernig maður byggi til hina og þessa sósuna og svo voru aðrir sjókokkar sem maður gat flett upp í og fengið leiðsögn hjá. Ég varð alveg ágætur kokkur. Ég man eftir því að karlarnir sem voru í landi og beittu línuna hlökkuðu til að koma um borð þegar neta­vertíðin byrjaði, því þeir höfðu heyrt að ég byggi til ágætan mat. Þetta var allt saman dálítill skóli.“

Hálfgerður barningur

Þórir Jökull segir að eftir þetta hafi hann verið hér og þar til sjós þangað til hann fann nýja leið að ganga; hann var á neta­vertíð, á rækjubáti og á humri. „Þetta var svona hér og þar. Ég var á tveimur eða þremur síldar­vertíðum á Höfn í Horna­firði og úti fyrir Aust­fjörðum. Þá var veitt í reknet. Ég held að það sé alveg hætt núna. Það voru lagðar þessar ofboðs­lega löngu dræsur í hafið; skip­stjórarnir lágu yfir dýptar­mælinum til að finna torfurnar og finna út hvað djúpt þær lægju á. Síðan var kallað „klárir“ og þá hlupu allir til og þessar ofboðs­legu neta­dræsur voru lagðar í sjóinn og reynt að sökkva þeim niður á rétt dýpi. Síðan var þetta dregið inn og dregið í gegnum svokallaðan hristara sem hristi þá síldina úr.“ Þórir Jökull segir að þetta hafi verið veiði­skapur sem hafi aðallega farið fram á nóttunni. „Maður var að draga þetta á nóttunni og stundum fram á morgun.“

Sjómennskan var með hléum. „Ég byrjaði upp úr nýári 1979 og síðan var þetta með hléum. ég held að síðasta úthaldið mitt hafi verið á rækjubáti frá Ísafirði sumarið 1983. Þá hafði ég einsett mér að fara í skóla eftir hlé. Ég var orðinn faðir og þetta var ekki allt einfalt; að sjá fram á að geta fjár­magnað að komast í skóla. Ég byrjaði á því þetta sumar og var á trolli á báti sem heitir Kópur og er frá Þorláks­höfn. Svo einu sinni vorum við að fara út og þá var einhver skíta­bræla og skip­stjórinn, Gunnar Egilsson, ákvað að snúa við í þetta sinn og það varð úr þessu eitthvert stopp. Á þeim tíma frétti ég að það vantaði kokk á rækjubát, reyndar Jón Jónsson frá Ólafsvík, sem þá lagði upp á Ísafirði.

Þá voru menn að byrja að veiða úthafs­rækju úti fyrir Norður­landi og Vestfjörðum og það var gríðar­lega hátt verð á rækju á heims­markaði. Og það var verið að vinna þetta á Ísafirði. Ég hringdi og kannaði hvort ég gæti ekki fengið þetta starf og það stóð bara heima. Ég man að ég fór hálf­afsakandi til Gunnars Egils­sonar, skip­stjóra á Kópnum, og sagði honum að ég hefði fengið starf sem gæfi líklega betur af sér, hvort hann myndi ekki fyrirgefa mér ef ég söðlaði um. Hann var ekkert kátur, en lét þetta eftir mér. Þetta sumar sem við vorum að veiða rækjuna úti fyrir Norður­landi og norður af Vestfjörðum gaf svo vel í aðra hönd að ég gat byrjað í Samvinnu­skólanum og það var skref inn í nýja tilveru fyrir mig.“

Það var ekk­ert ofboðs­lega mikið úr þessu að hafa.

Á þessum tíma hafa það verið gríðarleg uppgrip fyrir unga menn að fá pláss á vinsælum skipum. Var það ekki raunin hjá þér í flestum tilvikum?

„Það gátu komið góðar slettur inn á banka­reikninginn hjá manni eða í launa­umslagið en þvert yfir finnst mér þetta oft hafa verið hálf­gerður barningur. Það var ekkert ofboðs­lega mikið úr þessu að hafa. Miklar fjar­vistir. En jú, kannski miðað við fyrir ómenntaðan mann og óreyndan þá gaf þetta betur af sér heldur en margt annað. Þetta gat líka á köflum verið skemmtilegt. Ef maður var í góðri áhöfn þar sem var góður mórall og skemmtilegur mann­skapur þá var þetta aldeilis ágætt fyrir ungan mann að reyna að spreyta sig á þessu.“

Jú, mórallinn skiptir máli. „Ég man eftir því á neta­vertíðum þegar við vorum að draga inn trossurnar og taka þorskinn úr þeim þá var oft líflegt spjall yfir neta­borðið og verið að segja alls konar kjafta- og lygasögur. Þetta gat verið alveg ofboðs­lega gaman og fór eftir því hversu góðir sögumenn áttu í hlut.“

Trúin og sjósóknin

Svo söðlaði Þórir Jökull um og fór í guðfræði. Fiskurinn er trúarlegt tákn. Er hægt að tengja þetta saman við fisk­veiðar?

„Það er margt sem getur leitt menn á svið trúarlegra þanka, svið guðfræðinnar. En það er alveg rétt; ég man oft þessa tilfinningu til sjós að finnast bátur og menn afskaplega smáir og eiga einhvern veginn allt undir bæði forsjóninni og því hvernig tíðar­farið hagaði sér. Og hvort tveggja er nátt­úrlega bjargræðis­vegur; trúin og sjósóknin. Það er það hvort á sinn hátt.“

Þar er ákveðin menn­ing út af fyrir sig.

Þórir Jökull er spurður hvort hann hafi fundið fyrir löngun til að fara aftur á sjó eftir að hann hætti.

„Mér hefur alltaf þótt vænt um þennan tíma og á þann hátt er alveg óhætt að tala um taugar til þess arna og sjósóknar og þess líf sem hrærist um borð í fiskibátum. Þar er ákveðin menning út af fyrir sig. En það einhvern veginn varð ekki þannig að þetta yrði nærtækt eftir að þessu luak. En ég hef til dæmis alltaf tekið til mín hátíðarhöld á sjómanna­degi og verður þá hugsað til þessara tíma og þessarar reynslu.“

Hægt er að hlusta á allt viðtalið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá