Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Sæstrengur færður vegna Harry Potter-aðdáenda

Wingardium Leviosa

Emma Watson sem Hermione Granger, Daniel Radcliffe sem Harry Potter og Rupert Grint sem Ron Weasley
Emma Watson sem Hermione Granger, Daniel Radcliffe sem Harry Potter og Rupert Grint sem Ron Weasley Mynd: Skjáskot

Áformum um lagningu nýs rafstrengs milli Bretlands og Írlands var breytt eftir að hundruð Harry Potter-aðdáenda mótmæltu því að strengurinn ætti að liggja um svokallaða gröf húsálfsins Dobby á strönd í Wales en greint er frá þessu í The Guardian

Um er að ræða Greenlink-rafstrenginn, sem kostar um 430 milljónir punda og tengir raforku­kerfi Bretlands og Írlands. Upphaf­lega stóð til að strengurinn, sem er um 200 kílómetra langur, yrði lagður í jörðu við Freshwater West-ströndina í Pembrokeshire.

Ströndin er vel þekkt meðal aðdáenda Harry Potter-myndanna en þar var atriði í Harry Potter and the Deathly Hallows tekið upp þar sem Dobby er lagður til hinstu hvílu.

Simon Ludlam, verkefna­stjóri Greenlink, segir að mikil viðbrögð hafi orðið eftir að hann sýndi fyrir­hugaða legu strengsins í sjónvarps­viðtali við BBC. Hundruð símtala hafi borist frá aðdáendum sem óttuðust að framkvæmdin myndi raska „gröf“ Dobby.

Ludlam kveðst sjálfur ekki hafa vitað hver Dobby væri og í fyrstu átt erfitt með að skilja hvers vegna málið vakti svo sterk viðbrögð. Starfs­félagi hans hafi hins vegar gert honum ljóst að aðdáendur tækju málið mjög alvarlega.

Í kjölfarið var ákveðið að endur­skoða legu strengsins og fundin ný leið fram hjá staðnum. Ludlam sagði verkefnið nú halda áfram án þess að „gröf“ Dobby yrði raskað.

Hann benti jafnframt á að nýja leiðin lægi nærri raun­verulegum forn­leifum frá bronsöld, meðal annars duft­kerjum sem tengjast greftrunum, en þeim hefði einnig verið hlíft.

National Trust, sem fer með umsjón strandarinnar, hefur áður beðið Harry Potter-aðdáendur um að skilja ekki eftir steina og aðra muni við „gröfina“, enda sé svæðið viðkvæmt frá náttúru­verndar­sjónarmiði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki heldur farga henni
Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Heimur

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Taryn Laprade og presturinn urðu vör við atvikið þegar þau beygðu inn á rangan veg á heimleið eftir blakleik.

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs