Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Aron Einar rifjar upp versta augnablikið á ferlinum: „Það var ekki sofið eina sekúndu þá nóttina“

Aron Einar
Aron Einar

Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði íslenska lands­liðsins var í viðtali í hlaðvarps­þættinum Götu­strákar á dögunum. Þar ræddi hann um ferilinn og fleira áhugavert.

Í liðnum „Hvað er“ spurðu Götu­strákarnir fyrir­liðann spurninga sem byrjuðu á hvað er … en þar var hann meðal annars spurður út í versta augna­blikið og versta þjálf­arann.

Hér er brot úr liðnum:

„Hvað er besta móment á ferlinum?“

„Ætli það sé ekki þegar við komumst fyrst á EM. Ég held að það hafi verið ákveðinn hápunktur. En það eru nokkur, að komast upp í úrvals­deild en ég held að það sé ekkert meira special en að komast á fyrsta stórmótið með landinu sínu. En svo er það Austur­ríki og England, þetta eru geggjaði leikir sem verða aldrei gleymdir held ég.“

„Hvað er versta mómentið á ferlinum?“

„Versta móment? Vá. Ég held að það sé Króatía úti. Ég átti bara mjög lélegan leik. Þetta var fyrir HM 2014 í Brasilíu. Við vorum í playoffs þar og áttum góðan leik hér á heima­velli. Og þeir fengu rautt þarna úti. Þeir voru eitt núll yfir og okkur vantaði bara eitt mark til að jafna og þá hefðum við farið áfram á útivallar­marki en við vorum bara skelfi­legir í þessum leik og þar á meðal ég sjálfur. Mér hefur aldrei liðið jafn illa á fótbolta­ferlinum inni í klefa eftir þann leik. Það er ekki oft sem mér er skipt út af en mér var skipt út af í þessum leik. En ég held samt að þetta hafi verið skrifað í skýin, við vorum ekki tilbúnir. Ef við hefðum farið á HM í Brasilíu 2014 þá hefði bara verið valtað yfir okkur. Við vorum ekki ready sem lið.“

„Það hefur verið þungt andrúms­loftið?“

„Þú getur rétt ímyndað þér það. Það var ekki sofið eina sekúndu þá nóttina.“

„Hvað er mest óþolandi þjálfari sem þú haft?“

„Auðveld spurnin, án þess að ég vilji henda honum eitthvað fyrir lestina. Við áttum bara ekki saman. Russell Slade heitir hann, hann var með mér í Cardiff. Þetta var tímabilið fyrir EM en ég var ekkert að spila, hann var bara með mig á bekknum sem er allt í góðu, maður tekur það ekki mikið inn á sig en hann var bara ekki honest. Ef ég verð þjálfari ætla ég alltaf að vera hrein­skilinn því ég lærði svo mikið þessum tíma því hann var bara: „Já, þú spilar í næsta leik“, þetta var kortér í EM. Og ég ætlaði að vera í leikformi og klár fyrir stórmótið. En svo horfði ég alltaf á starting elleven og þá var ég bara alltaf á bekknum og hugsaði bara „Jesús kristur!“, þannig að þetta var gæi sem ég náði bara engan veginn saman við.“

Hægt er að sjá allt viðtalið og meira til hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt