Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Forsetaframbjóðandi lifði af bílasprengju í Rússlandi: „Viðbjóðsleg árás öfgafullra Nasista“

Ég hugsa að hann fái ekki skoðun í ár.
Ég hugsa að hann fái ekki skoðun í ár.

Þjóðernis­sinnaði stjórn­mála­maðurinn og rithöfundurinn Zakhar Prilepin slasaðist alvarlega er sprengja sprakk í bifreið hans í rússnesku borginni Nizhny Novgorod í morgun. Samkvæmt fjöl­miðlum var dóttir hans einnig í bílnum en hún komst út úr honum áður en sprengjan sprakk.

Zakhar Prilepin

Fram kemur í rússneska útlaga­miðlinum Meduza, að bílstjórinn sem einnig er lífvörður hins rússneska stjórn­málamanns, lést í sprengingunni. Hann hafði áður barist fyrir sjálf­stæði Luhansk.

Prilepin var að ferðast til Moskvu frá herteknu borgunum Luhansk og Donetsk í Úkraínu en stoppaði á kaffihúsi í Nizhny Novgorod á leiðinni. Talið er að sprengjunni hafi verið komið fyrir í bíl hans á meðan hann át á kaffi­húsinu. Samkvæmt Telegram-rásinni Shot var sprengjunni komið fyrir undir húddi bifreiðar Prilepin og sprakk um leið og ekið var frá kaffi­húsinu. Sprengjan skyldi eftir sig gíg og dreifðust brök úr bifreiðinni í allt að 50 metra fjarlægð.

Misvísandi fregnir af ástandi Prilepin

Ástand Prilepin er alvarlegt en hann mun fara í skurð­aðgerð í sjúkra­húsi í Nizhny Novgorod. Fregnir af heilsu hans hafa verið misvísandi en borgar­stjóri Nizhny Novgorod, Gleb Nikitin sagði að rithöfundurinn væri „í lagi“. Neyðar­þjónustur á svæðinu staðfestu síðar að Prilepin hefði slasast. Samkvæmt TASS-miðlinum slasaðist Prilepin á báðum fótleggjum og fullyrti úkraínski blogg­arinn Anatoly Shariy, sem er hlið­hollur Kremlin, að báðir fótleggir Prilepin hefðu verið teknir af honum í skurð­aðgerð. Frétta­miðillinn RIA Novosti hafði hins vegar eftir lögreglu­mönnum að Prilepin hafi hlotið beinbrot og heila­hristing.

Sprengingin er rannsökuð sem hryðju­verk en talsmaður Vladimirs Pútín Rúss­lands­forseta neitað að tjá sig um málið. Það gerði hins vegar Dmitry Medvedev, vara­formaður öryggis­ráðs Rússlands og fyrr­verandi forseti landsins en hann kallaði árásina „viðbjóðs­lega árás framkvæmd af öfga­fullum Nasistum.“

Tveir eru í haldi lögreglunnar í Nizhny Novgorod, grunaðir um árásina, eftir rannsókn yfirvalda á svæðinu. Hefur lögreglan haft það verkefni að stoppa „öll grun­samleg farartæki.“ Samkvæmt heimildar­manni Interfax hafði hinn grunaði elt Prilepin en samkvæmt sama heimildar­manni er hann um þrítugt og passar við lýsinguna á þeim sem var sagður hafa sést fyrir utan heimili Prilepin í Nizhny Novgorod. Bætti hann við að önnur manneskja sem hafi „sést nálægt þorpinu í bifreið sem hafði engin bílnúmer“, sé enn leitað.

Játningar liggja fyrir

Síðar í dag játaði annar hinna handteknu, Alexander Permyakov, að hafa sprengt sprengjuna. Segist hann hafa gert það eftir leið­beiningu frá leyni­þjónustu Úkraínu. Segist hann hafa komið sprengjunni fyrir á veginum þar sem Prilepin var að ferðast á og að hann hafi sprengt hana með fjar­stýringu.

Stjórn­málakona Ilya Ponomarev sagði að sprengjan hafi verið skipulögð af Þjóðernisher lýðveldisins, sem er meintur hópur Rússa sem vilji koma Pútín frá völdum með ofbeldi. Hópurinn hefur þegar lýst yfir ábyrgð á morðum á áberandi hægri­mönnunum Vladlen Tatarsky og Dariu Dugina.

Þá hefur Atesh, hernaðar­hreyfing Úkraínu­manna og Tatara af Krímskaga, frá hernumdu svæðunum í Úkraínu, einnig játað að eiga sinn þátt í árásinni. Þann 28. janúar birti Atesh hreyfingin eftir­farandi texta á Telegram: „Skipun varðandi Prilepin hefur verið gefin! Við höfum sent út meira en 5.000 skilaboð til okkar manna og til rússneskra hermanna, um að finna og eyða þekktum Rússista (e. Ruscist)“. Í dag, eftir að sprengjan sprakk, tilkynnti Atesh að þeir hefðu „verið að veiða Prilepin frá áramótum,“ og bættu við: „Spár okkar rætast alltaf því við tölum ekki bara, við fram­kvæmum.“

Forsetaframboð 2024

Þann fjórða maí skrifaði Prilepin á Telegram-rás sína að Oplot-herdeildin sem hann stjórnaði, myndi taka sér frí frá stríðs­átökunum. Rithöfundurinn og stjórn­mála­maðurinn hóf þátttöku í stríðinu í janúar 2023. Studdi hann rússneska hermenn frá fyrsta degi stríðsins en talsmaður hans sagði að hann stjórnaði „mannúðar­störfum“ í herteknu svæðum Úkraínu.

Prilepin hugðist bjóða sig fram til forseta Rússlands árið 2024 en í ágúst 2022 var hann búinn að opna fjöldi kosninga­skrifstofa í Rússlandi sem og í Kherson og Kharkiv. Ein heimild sagði frétta­miðlinum Vedomosti að stjórn Pútíns liti ekki á forseta­framboð Prilepin „jákvæðum augum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið í kvöld. Síðdegis hvessir einnig suðvestanlands.
Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Mette Frederiksen segir gagnrýni á orðaval sitt ekki lýsa afstöðu sinni. Ummæli hennar í stjórnmálahlaðvarpi hafa vakið umræðu í Danmörku.

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár