Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Hvarfið á Látraströnd – Jörðin gleypti ítalskan ævintýramann

Látraströnd
Látra­strönd Mynd: Alvaro

Í maíbyrjun 2002 kom til landsins hinn 33 ára gamli Ítali, Davide Patie sem var lýst sem ljúfum en einrænum ævintýra­manni. Ítalinn ferðaðist víða á landinu milli þess sem hann fram­fleytti sér með vinnu á bóndabæ á Vestur­landi. Einn ágústdag hélt Patie af stað í enn eina ævintýra­ferðina en þá fór hann frá Grenivík og var ferðinni heitið að Látra­strönd. Lagði hann af stað þann 8. ágúst og ætlaði að koma aftur í síðasta lagi 13. ágúst en hann var ekki búinn fjarskipta­tækjum né með mikinn viðlegu­búnað með sér. En hinn ungi Ítali kom ekki aftur þann 13. ágúst. Patie fannst aldrei aftur.

Morgun­blaðið sagði svo frá leitinni að Patie:

Víðtæk leit að ítölskum ferða­manni

LÖGREGLAN á Akureyri og hjálpar­sveitir hófu um hádegi í gær víðtæka leit að ítölskum ferða­manni sem talinn er týndur á Látra­strönd, austan­vert við Eyjafjörð. Stóð leit yfir fram í myrkur í gærkvöldi. Skv. upplýsingum lögreglunnar á Akureyri er leit haldið áfram frá birtingu í dag. Verður leitin þá stórefld og leitað nákvæmar á því svæði sem líklegt er talið að maðurinn hafi ætlað að fara um. Fundu ódagsetta bókun Maðurinn, sem heitir Davide Patie og er 33 ára, gaf sig fram við sundlaugar­starfsmann á Grenivík fyrir viku og bað hann að gæta fyrir sig búnaðar meðan hann færi í göngu á Látra­strönd. Var reiknað með að maðurinn yrði kominn til baka innan tveggja daga. Búnaðurinn var geymdur fyrir manninn en hans hefur ekki verið vitjað síðan. Björgunar­sveitar­bifreiðar voru sendar í gær á Flat­eyjardal og í Hval­vatnsfjörð til að grennslast fyrir um manninn og björgunar­bátar fóru með ströndinni. Leitar­menn fundu bókun eftir manninn í neyðar­skýlinu á Látrum en hún er ódagsett. Björgunar­sveitarmenn gengu yfir Uxaskarð í Keflavík í gær og sigldu auk þess með ströndum á svæðinu. Leitar­svæðið er seinfarið og erfitt yfir­ferðar og er eingöngu hægt að aka eftir slóða um mjög lítinn hluta þess.

Daginn eftir að leit hófst af Paita, fundust vísbendingar um ferðir hans en hann hafði skráð sig í gestabók á Látrum. DV sagði frá málinu:

60 björgunar­sveitarmenn leita ferða­manns sem fór frá Grenivík fyrir átta dögum:



Ítalinn skráði nafn sitt í gestabók á Látrum

33 ára ítali, Davide Paita, sem leitað hefur verið að frá þvi í gær, skrifaði nafn sitt í gestabók slysavamaskýlis við Látra­strönd, utanvert í Eyjafirði, í lok síðustu viku. Eftir það hefur ekkert til hans sést og hafa um 60 björgunar­sveitarmenn úr Eyjafirði leitað að honum frá því í gær. Átta dagar eru liðnir frá því að maðurinn kom að máli við starfs­mann sund­laugar á Grenivík þar sem hann óskaði eftir að bakpoki hans, sem m.a. innihélt vegabréf, og poki með öðrum farangri yrði geymdur þar á meðan hann færi í gönguferð með tjald í Fjörðumar. ítalinn hugðist ganga eftir Látra­strönd og væntanlega irrn i Þorgeirs­fjörð og Hval­vatnsfjörð. Maðurinn hafði ekki matar­forða til margra daga en lagði afstað á fimmtudag, fyrir átta dögum.

Þegar leit hófst í gær kom á daginn að Paita hafði ritað nafn sitt í gestabók slysavamaskýlis við Látra­strönd. Hann hafði skrifað nokkrar línur á eigin tungumáli. Hvað það var lá ekki fyrir í morgun en þó var ljóst talið að maðurinn ætlaði að halda göngu sinni lengra áfram frá byggðum. Undir­skriftin var ekki með dagsetningu. Hins vegar var dagsetning síðasta komumanns á undan skráð þann 7. ágúst en sá sem kom næstur á eftir Italanum í sama skála ritaði nafn sitt í gesta­bókina síðastliðinn sunnudag, þann 11. ágúst. Því er ljóst talið að ítalinn hafi verið í skálanum um eða undir síðustu helgi. Farið var að óttast um ítalann á Grenivík þegar leið á vikuna en lögreglu var tilkynnt um hann í gær – viku eftir að hann lagði afstað úr þorpinu. Björgunar­sveitarmenn vom reiðu­búnir að hefja leit strax um birtingu en þyrla var til taks á Reykja­víkur­flugvelli þegar DV fór í prentun. Flug­skilyrði voru hins vegar óhagstæð, lágskýjað og strekkings­vindur fyrir norðan.

Ekkert bólaði á Ítalanum en þann 20. ágúst birti Morgun­blaðið frétt þar sem honum var lýst sem einrænum en ljúfum ævintýra­manni sem átti foreldra og systur á Ítalíu sem voru í stöðugu sambandi við lögregluna og ítalska ræðis­manninn á Íslandi.

Afdrif Davides Paita mönnum hulin ráðgáta

Einrænn ævintýra­maður

Davide Paita

ENN eru afdrif Ítalans Davides Paita mönnum hulin ráðgáta, en hans hefur verið saknað í nærri hálfan mánuð og leitað svo dögum skiptir í Eyjafirði. Leit er í biðstöðu og verður ekki fram haldið fyrr en nýjar vísbendingar koma fram um afdrif hans. Málið sætir samt áfram rannsókn lögreglunnar á Akureyri. Paita kom hingað til lands í maíbyrjun og hefur ferðast víða um landið milli þess sem hann hefur fram­fleytt sér með sveita­störfum á bóndabæ á Vestur­landi. Heimafólk þar segir hann ljúfan mann og lögreglan segir hann vanan ferðamann sem hafi ferðast víða um lönd á eigin vegum. Paita er 33 ára gamall og verður í fáum dráttum lýst sem einrænum ævintýra­manni. Hann á foreldra og systur á Ítalíu og hefur móðir hans verið í sambandi við ítalska ræðis­manninn á Íslandi auk lögreglu í báðum ríkjum. Ekki er vitað til þess að Paita hafi komið hingað til lands áður og þaðan af síður hversu lengi hann ætlaði að dvelja hér. Leiðir hans hafa verið raktar mjög vel hér á landi en slóðin hverfur á Látra­strönd. Á ferða­lögum sínum um landið hefur hann ekki átt vanda til að hverfa svo dögum skiptir eins og nú er. Þrátt fyrir að Paita sé vanur ferða­maður var hann ekki búinn neinum fjarskipta­tækjum þegar hann fór frá Grenivík út á Látra­strönd auk þess sem hann hafði lítinn viðlegu­búnað. Lögreglan hefur ekki útilokað þann möguleika að Paita sé á lífi þótt hún telji óeðlilegt að hann sé ekki búinn að vitja farangurs sem hann skildi eftir á Grenivík þegar hann lagði af stað í gönguferð um Látra­strönd hinn 8. ágúst. Ætlaði hann að koma til baka 11. ágúst eða í síðasta lagi hinn 13. ágúst.

Þrátt fyrir gríðar­lega leit fjöldi fólks, fannst Davide Paita aldrei, það var líkt og jörðin hefði gleypt hann. Blessuð sé minning hans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið