Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Burrito orðið að óvæntu deilumáli innan Repúblikanaflokksins

Ummælin hafa hrundið af stað hörðum skoðana­skiptum meðal íhalds­manna

Donald Trump er forseti Bandaríkjanna
Donald Trump er for­seti Banda­ríkj­anna Mynd: ANDREW CABALLERO-REYNOLDS / AFP

Verð á burrito hefur orðið að óvæntu hitamáli innan Repúblikana­flokksins í Banda­ríkjunum, þar sem vaxandi áhyggjur eru af því að hátt verðlag og framfærslu­kostnaður geti reynst flokknum dýrkeyptur í þing­kosningunum í nóvember.

Umræðan hófst eftir að Andrew Kolvet, talsmaður íhalds­sömu ungmenna­samtakanna Turning Point USA, birti færslu á X þar sem hann vitnaði í háskóla­nema innan samtak­anna sem sagði að burrito ætti ekki að kosta 20 Bandaríkja­dali. Kolvet sagði að þótt hluta verð­hækkana mætti rekja til verðbólgu í kjölfar Covid-faraldursins og forseta­tíðar Joe Biden væri upplifun almennings sú sama: nauðsynja­vörur væru einfald­lega orðnar of dýrar.

Ummælin hafa hrundið af stað hörðum skoðana­skiptum meðal íhalds­manna. Fox News hefur jafnvel lýst deilunum sem „borgara­styrjöld“ innan flokksins.

Dan Crenshaw, þingmaður Repúblikana­flokksins frá Texas, gagnrýndi kvartanir ungs fólks og sagði námsmenn frekar eiga að fá sér vinnu, borða ódýran mat og búa með fleirum líkt og fyrri kynslóðir hefðu þurft að gera.

Marc Thiessen, fyrr­verandi ráðgjafi George W. Bush Bandaríkja­forseta og nú dálka­höfundur, tók í svipaðan streng. Hann sagðist sjálfur hafa lifað á núðlum eftir útskrift og unnið hörðum höndum í stað þess að kvarta undan verðlagi.

JD Vance vara­forseti svaraði Thiessen hins vegar með persónu­legu skoti og sagði augljóst af líkams­vexti hans að hann hefði „aldrei sleppt burrito“.

Fleiri á hægri vængnum hafa varað við því að gera lítið úr áhyggjum kjósenda. Angela Morabito, talsmaður Defense of Freedom Institute, sagði að ef svar hægri­manna við framfærslu­vandanum væri að segja fólki að borða verr myndu Repúblikanar tapa kosningunum í nóvember og eiga það skilið.

Donald Trump Bandaríkja­forseti hefur á sama tíma haldið því fram að verðbólga sé á niðurleið og hafnað því að tolla­stefna hans hafi ýtt undir verð­hækkanir. Samkvæmt opinberum tölum fór verðbólga í 4,2 prósent í maí en lækkaði í 3,5 prósent í júní.

Framfærslu­kostnaður er áfram ofarlega í huga bandarískra kjósenda. Í nýlegri könnun Marquette-háskóla nefndu 35 prósent svarenda hann sem helsta áhyggju­efni sitt, töluvert fleiri en nefndu stríðið í Íran.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki heldur farga henni
Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Heimur

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Taryn Laprade og presturinn urðu vör við atvikið þegar þau beygðu inn á rangan veg á heimleið eftir blakleik.

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs