Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Páll Bergþórsson segir Esjuna vera að grænka: „Og líklega í fyrsta skipti í svona 800 ár“

Bergþór Pálsson fyrir nokkrum árum.
Bergþór Pálsson fyrir nokkrum árum. Mynd: Birtist á DV en er ómerkt.

Uppáhalds veður­fræðingur þjóðarinnar, Páll Bergþórsson á afmæli í dag. Er Páll 99 ára í dag og enn í fullu fjöri.

Páll Bergþórsson fæddist í Fljóts­tungu á Hvít­ársíðu árið 1923. Lauk hann stúdents­prófi frá Mennta­skólanum í Reykjavík árið 1944, prófi í veður­fræði við Sveriges Meteorologiska och hydrologiska Institut 1949 og fil. kand í veður­fræði 1955. Var Páll veður­stofustjóri frá 1989 til ársloka 1993.

Auk þess að flytja landanum veður­fréttir í sjón­varpinu í heil 23 ár, hefur Páll glatt fróðleiks­fúsa með bóka­útgáfum. Má þar helst nefna bækurnar Loftin blá og Veðrið. Þá hefur hann einnig unnið við rann­sóknir á tölvu­greiningu veður­korta, hafísspám, vexti og hopi skrið­jökla svo eitthvað sé nefnt.

Mannlíf heyrði í Páli og vildi vita hvort hann ætlaði að fagna afmælis­deginum.

„Já, ég ætla að fagna honum með mínu fólki. Með börnunum mínum og þeirra fólki. En það er of margt til að fá öll í einu. Afkomendurnir eru orðnir 30.“

Aðspurður hvernig Páll hefði það annars sagðist hann hafa það mjög gott. „Ég hef það ótrúlega gott í dag. Ég finn hvergi til. Og það er nú ekki alltaf sem maður er laus við það.“

En blaða­manni Mannlífs lá forvitni á að vita hvort Páll væri enn að horfa í skýjin og spá og spekúlera. Og auðvitað kom hann ekki af tómum kofanum hjá Páli.

„Það er nú takmarkað. En jú, jú maður horfir í skýin og Esjuna. Ég fylgist með henni. Hún er að ganga í gegnum svolítið merkilega þróun. Hún er að grænka. Hún er að verða græn. Og líklega í fyrsta skipti í svona 800 ár. Það er vegna hlýnunar sem er meiri núna en hefur verið. Það ætti að vera farið að kólna. Það koma svona hlýinda­skeið einu sinni á 100.000 árum, sem stendur í nokkur þúsund ár. En nú er þetta búið að vera í 10.000 ár og meira að segja farið að hlýna enn meira. Það þakka ég nú mann­fjöldanum mikla. Hann hefur aukist úr einum milljarði árið 1870 og kominn í átta milljarða núna. Þetta er rosaleg fjölgun og margt sem fylgir því. Allur maturinn sem þarf að elda og allt sem þarf að þvo, það koma hlýindi af því. Og vegna þessa mikla mann­fjölda hefur allt snúist við, það hefur hlýnað þegar átti að kólna. Í stað þess að það færi að kólna og það komi svona inngangur að ísöld þá er orðið hlýrra en hefur verið í 800 ár. Menn reiknuðu ekki almennilega með því að mann­fjöldinn gæti hitað svona mikið. Það er svo margt sem fylgir því, allir bílarnir, allar flug­vélarnar og verksmiðjurnar, allt þetta heimtar orku. Hitaorku. Og það fer út í náttúruna.“

Mannlíf óskar hinum ljúfa veður­fræðingi innilega til hamingju með afmælið!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið