Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Tíu ára drengur hljóp á ungling á reiðhjóli og féll í götuna – Seinna um kvöldið var hann allur

Guðmundur fór alltof snemma.
Guð­mundur fór alltof snemma.

Hinn tíu ára gamli Guðmundur Ólafsson var algjör­lega grunlaus að þessi síðsumar­dagur, 25. ágúst, væri hans síðasti í þessu jarðlífi. Hann hafði verið á göngu í miðbæ Reykja­víkur er hann rakst á dreng sem var vanur að leggja hann í einelti með hrekkjum. Hljóp hann því undan honum út Veltu­sundið en þegar hann kom að horninu á Austur­stræti gerðist nokkuð sem aldrei hafði gerst áður á Íslandi þó það hafi ekki komið í ljós fyrr en seinna um kvöldið. Guðmundur rakst af fullum þunga á unglings­pilt sem kom hjólandi eftir Austur­stræti. Duttu þeir báðir við áreksturinn en Guðmundur skalla aftur fyrir sig á götuna. Eftir að hafa jafnað sig í nærliggjandi verslun og fengið vatnsglas fór sá stutti heim á leið og virtist lítið vera að honum. Klukkan 23 var hann hins vegar allur. Slysið gerðist árið 1915 og var fyrsta bana­slysið í umferð í Íslands­sögunni.

Vísir sagði svo frá þessum hryggilega atburði:

Sorglegt slys vildi til hér í bænum í gærkveldi. 

Tíu ára gamall drengur, Guðmundur Ólafsson frá Baldurs­götu 1, hljóp út Veltusund undan öðrum dreng, sem ætlaði að hrekkja hann. En á horninu á Austur­stræti rakst hann á pilt, sem kom á hjóli eftir Austur­stræti. Pilturinn á hjólinu hafði verið á hægri ferð, en hraðinn á Guðm. var svo mikill, að við áreksturinn duttu þeir báðir, og skall Guðmundur aftur á bak á götuna. Pilturinn, sem á hjólinu var, studdi nú Guðmund inn í búð Ragnars Levis, og var hann látinn fara þar upp á loft til að jafna sig. Náði hann sér nú brátt svo, að hann vildi fara heim til sín. Bar þá orðið ekkert á því, að neitt alvarlegt væri á ferðum. — Hann hafði ekki mist meðvitundina og aðeins einu sinni haft orð á því, að sér væri að verða ilt, og búist við því, að kasta upp, en það leið frá, er hann fékk vatn að drekka. Fór hann nú heim til sín og annar lítill drengur með honum. 

Þegar heim var komið, var Sæm. prófessor Bjarnhéðinsson sóttur og var honum sagt, að liðið hefði yfir drenginn og að hann hefði kastað upp. Af því réði Sæm. það, að um heila­hristing væri að ræða, en í litlum stíl þó, því að drengurinn var allhress að sjá, talaði eðlilega og kendi sér eiginlega einskis meins. Áleit Sæmundur því, að engin hætta væri á ferðum, en ráðlagði bakstra við höfuðið. Þetta var um kl. 8 í gærkveldi, en kl. II var drengurinn dáinn. Vér höfum átt tal við próf. Sæmund og telur hann líklegast, að sprungið hafi æð í höfðinu og blætt í heilann. Óhæti mun að fullyrða að enginn eigi sök á slysi þessu.

Drengurinn fullyrti sjálfur að pilturinn á hjólinu hefði enga sök átt á því, og um það ber öllum sjónar­vottum saman. — Helst er ávíttur drengurinn sem elti Guðmund sáluga, og sagt að hann hafi lagt það í vana sinn að hrekkja hann, hvar sem hann náði til hans. En þótt slíkt sé Ijótt, þá er þó ekki rétt að gefa honum sök á slysi þessu

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning