Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Bauð börnum sígarettur í Hafnarfirði – Slompaður aðili fluttur á slysadeild eftir fall

Lögreglan að störfum.
Lög­reglan að störfum. Mynd: Lára Garðarsdóttir

Nóttin var í rólegri kantinum á höfuð­borgar­svæðinu ef marka má dagbók lögreglunnar.

Sótölvaður aðili olli ónæði í bílastæða­húsi í miðbænum en var honum vísað á brott af lögreglu.

Í hverfi 105 barst tilkynning um þétt­kenndan gest á hóteli en hann fór ekki að fyrir­mælum lögreglu og gistir því fanga­geymslur þar til víman rennur af honum.

Þá voru fjórir ökumenn hand­teknir grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis eða vímuefna. Var einn þeirra aukreitis sviptur ökuréttindum.

Í miðbænum féll stútungs­fullur aðili í jörðina og hlaut hann áverka á höfði. Var hann fluttur með sjúkrabíl á slysa­deild til nánari skoðunar. Annar svín­fullur og óvelkominn aðili var tilkynntur til lögreglunnar se mætti á svæðið og tók hann höndum. Gistir hann í fanga­klefa þar til rennur af honum.

Í Hafnar­firði barst lögreglu símtal vegna aðila sem átti að hafa verið að bjóða börnum sígarettur í gærkvöldi. Sá var farinn þegar lögreglan bar að garði.

Kvartað var undan spólandi bifreiðum sem olli hávaða í hringtorgi í Kópavogi en þegar lögregluna bar að var ekkert slíkt að sjá. Ekki var heldur enginn sjáanlegur í Kópavogi þegar lögreglan brást við útkalli vegna slagsmála þar í bæ.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning