Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Heilsugæslan er sprungin: „Þú færð ekki að sækja þjónustu“

Gunnlaugur Már Briem, formaður Félags sjúkra­þjálfara, er einn af fjölmörgum sem eru ósattir með heilbrigðis­kerfið á Íslandi og hversu langan tíma það tekur að komast að hjá heimilis­lækni.

„Staðan er nefnilega þannig í dag að þú færð ekki að sækja þjónustu t.d. sjúkra­þjálfara án þess að fara fyrst á heilsu­gæsluna, sem er ákveðið vandamál þegar erfitt er að fá tíma á heilsu­gæslunni. Ákvæði um bráða­meðferðir var síðast fellt út í október 2020 af þáverandi heilbrigðis­ráðherra Svandísi Svavars­dóttur.“

Svandís Svav­ars­dóttir, mat­væla­ráð­herra. Mynd/skjá­skot.

Gunnlaugur telur þessa stöðu vera bagalega fyrir þá einstaklinga sem þarfnast þjónustu því eins og fram hefur komið, þá er biðtíminn eftir bókuðum tímum á höfuð­borgar­svæðinu mjög langur, 7 vikur í heilsu­gæslunni Miðbæ, 4 vikur á Seltjarnarnesi og ekki hægt að bóka á heilsu­gæslunni Hlíðum. Áður hefur það verið svo að einstaklingar gátu farið í t.d. sex meðferðar­skipti til sjúkra­þjálfara án beiðni frá lækni og fengið endur­greiðslu eins og aðrir sjúkra­tryggðir. Þyrftu þeir svo lang­varandi meðferð þurfti að fá beiðni frá lækni því til stuðnings.

Gunnlaugur leggur fram í aðsendri grein á Vísi þá spurningu hvort hægt sé að hafa áhrif á biðtímann?

Leggur hann fram hugmyndir til að létta á flösku­hálsinum sem hann segir að hafi verið að myndast síðan 2020.

„Þá hafði sú ákvörðun þáverandi ráðherra árið 2020, að allir þyrftu beiðni í sjúkra­þjálfun sama hversu umfangs­mikið vanda­málið væri, töluverð áhrif til þess að auka álag á heilsu­gæsluna. Ef við berum saman gögn yfir fjölda útgefinna beiðna í sjúkra­þjálfun frá heilsu­gæslunni milli áranna 2020 og 2021, þá jókst fjöldi beiðna um 5.309, eða úr 36.035 og í 41.344.

Með því að létta á þessum flösku­hálsi mætti ætla að hægt væri að fækka verkefnum og komum á heilsu­gæsluna umtals­vert. Þetta er einföld framkvæmd sem nú eins og áður gæti borið skjótan árangur.

Mikil tækifæri felast í því að nýta fleiri fagstéttir sem fyrsta tengilið á heilsu­gæslum og efla þver­faglegt samstarf heilbrigðis­stétta. Til að mynda hafa verkefni tengd stoðkerfis­móttökum gefið góða raun nú í nokkurn tíma og vonum við að okkur hljótist gæfa til að lagður verði aukinn kraftur í fjöl­breyttar lausnir í fram­tíðinni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið