Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Tveimur bjargað af fjalli í nótt – Annar datt og hinn lenti í sjálfheldu

Frá björgunaraðgerðunum í nótt.
Frá björg­un­ar­að­gerð­unum í nótt. Mynd: Landsbjörg

Hjálpar­beiðni barst frá tveimur einstaklingum klukkan hálf tvö i nótt en þeir höfðu verið að klífa Fagrafell á Hamragarða­heiði við Eyja­fallajökul.

Hafði annar mannanna fallið niður tölu­verðan spotta og við það varð hinn maðurinn í sjálf­heldu og komst ekki niður til þess sem datt. Kemur þetta fram í frétt sunnlenska.is.

Þar kemur fram að björgunar­sveitir af Suður­landi hafi verið boðaðar á hæsta forgangi í verkefnið en fyrsta björgunar­fólkið var mætt á slysstað um klukkan 2:20.

Mikið brattlendi er þar sem slysið varð og var erfitt fyrir björgunar­fólk að komast á vettvang. Frá höfuð­borgar­svæðinu voru sérhæfðir undan­farar í fjalla­björgun kallaðir út, auk þess sem þyrla Landhelgis­gæslunnar kom frá Egils­stöðum en þar var hún stödd vegna snjó­flóðanna í Neskaups­stað.

Siglínur voru notaðar til að tryggja björgunar­fólk á svæðinu og færa þann slasaða, svo öruggara væri að komast að þeim sem var í sjálfheldunni ofar í hlíðinni. Var svo hinn slasaði hífður um borð í þyrluna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Héraðs­dómur synjar foreldrum Sólons um vitna­leiðslu

Foreldrarnir vildu fá fram hvað sagt var á fundi sonar þeirra með starfsfólki Icelandair fyrir starfslok hans
Innlent

Biðja um svör eftir að hundar urðu kettinum þeirra að bana

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Pólitík

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Landið

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heilluðust af íslenska hálendinu

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp