Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Milla Ósk segir frá fæðingarþunglyndinu: „Mér leið oft eins og ég gæti ekkert gert fyrir hann“

„Þegar ég fór að opna á þessa hluti við fólkið í kringum mig fannst mér nær undan­tekningar­laust vera mæður, og oft feður líka, sem tengdu við þessar tilfinningar. Ég fékk að heyra alls konar reynslu­sögur; allir virtust tengja. Mér í raun brá að heyra það og þá að fatta hversu lítið þetta er rætt opinber­lega. Ég fann líka að það hjálpaði mikið að skrifa pælingarnar mínar niður á blað og ákvað því að taka skrefið og opna á þetta opinber­lega. Það var mikill léttir og hlýjan og stuðningurinn sem því fylgdi gerir mig bara hálf orðlausa,“ segir Milla Ósk Magnúsdóttir sem nýlega lýsti á Facebook-síðu sinni reynslu sinni af fæðingar­þunglyndi og kvíða sem hún upplifði í kjölfar fæðingar sonar síns og eigin­mannsins, Einars Þorsteins­sonar, fyrr á þessu ári.

Þetta voru við­burða­ríkir dagar þarna stuttu eftir fæð­ing­una.

„Meðgangan gekk mjög vel og það var því ákveðið áfall að greinast með meðgöngu­eitrun. Ég greindist á föstudags­eftir­miðdegi og var sett af stað strax morguninn eftir. Meðgöngu­eitrun fylgir oft mikill bjúgur sem fer svo fljótlega eftir fæðingu. Það gerðist aldrei hjá mér og þannig fattaðist hjarta­bilun. Henni fylgdi mikil vökva­söfnun og mæði þannig ég var lögð inn á hjarta­deild í lyfjagjöf með Emil sex daga gamlan. Nýrnasteina­kast kom svo í kjölfarið af því. Þetta voru viðburða­ríkir dagar þarna stuttu eftir fæðinguna. Ég var í nokkrar vikur að ná fullum styrk og er enn á lyfjum og góðu eftirliti hjá göngu­deild hjarta­bilunar.“

Þessi skilyrðislausa ást

Milla fór í kjölfar fæðingarinnar að finna fyrir andlegri vanlíðan og segir hún að ungbarna­verndin og yndislegu hjúkrunar­fræðingarnir hjá heilsu­gæslunni hafi gripið sig eins fljótt og hægt var.

Maður var algjör­lega van­mátt­ugur gagn­vart kveis­unni og þá var maður fljótur að sökkva and­lega.

„Það er nær ómögulegt að lýsa því hvernig þetta var. Allar áhyggjur og kvíði snerust aðallega um Emil, að reyna að hjálpa honum í gegnum kveisu­köst og reyna að finna út hvað væri að gerast með litla kroppinn. Maður var algjör­lega vanmáttugur gagnvart kveisunni og þá var maður fljótur að sökkva andlega. Samfélags­miðla­samanburður hefur svo aldrei hjálpað neinum og hann gerði það svo sannarlega ekki í mínu tilfelli. Það var mjög erfitt að sjá allar duglegu mömmurnar að stússast með vagnana eða í ferða­lögum þegar ég átti barn sem vildi ekki sjá neitt slíkt. Mér leið oft eins og ég gæti ekkert gert fyrir hann og það er erfið tilfinning fyrir mömmu­hjartað.“

Hvernig er líkamlega og andlega líðanin í dag?

„Miklu betri. Allt fólkið mitt stóð svo þétt með mér og ég fékk mikla hjálp hjá heilsu­gæslunni. Emil er betri af kveisunni og við förum í göngutúra á hverjum degi.“

Milla er spurð hvað henni finnist hún hafa lært af því að ganga í gegnum þetta – bæði hvað varðar líkamlegu veikindin og þau andlegu.

„Annars vegar hvað heilbrigðis­kerfið okkar er öflugt og hins vegar hvað ég er heppin með ótrúlega sterkt og gott fólk í kringum mig.“

Emil er hálfs árs og segir móðir hans að hann sé algjör grínari og hlæi mikið. „Hann er líka mjög ákveðinn, með miklar skoðanir og vill helst mikinn mat oft á dag. Að mörgu leyti er hann því alveg eins og mamma sín. Hann veit ekkert skemmtilegra en stóru systur sínar og miðað við hvað honum finnst gott að naga bækur verður hann vonandi lestrar­hestur í fram­tíðinni.“

Þessi skil­yrð­is­lausa ást kom á óvart.

Hvað kom Millu mest á óvart hvað varðar móðurhluverkið, hvað er auðveldast og hvað er erfiðast?

„Þessi skilyrðis­lausa ást kom á óvart. Ég hef auðvitað vitað að foreldrar elski börnin sín en almáttugur; maður springur af ást nokkrum sinnum á dag. Manni langar hins vegar líka að gefast upp oft á dag. Þetta er svaka­legur rússibani sem er sem betur fer oft mjög skemmtilegur.“🥰

Spila og hlægja saman

Milla er lögfræðingur frá HR. Hún vann á RÚV í 10 ár og þar af sem frétta­maður í fjögur ár. Hún varð svo aðstoðar­maður Lilju Alfreðs­dóttur, sem var þá mennta- og menningar­mála­ráðherra, og við síðustu stjórnar­myndun varð hún aðstoðar­maður heilbrigðis­ráðherra.

Það var fyrst og fremst húmor­inn sem heill­aði mig við hann.

Milla kynntist eigin­manninum, Einari Þorsteins­syni, hjá RÚV en hann vann þar einnig sem frétta­maður. „Það var fyrst og fremst húmorinn sem heillaði mig við hann. Við hlægjum endalaust saman. Svo er hann líka ágætlega myndar­legur; það hjálpaði líka.“

Hún er spurð hvað ástin sé í huga hennar.

„Að standa af sér storminn saman og lyfta hvort öðru upp.“

Hvað með rómantíkina?

„Við erum eins rómantísk og hversdags­leikinn býður upp á held ég. Við störfum bæði í stjórn­málum þannig að þau eru mikið rædd á heimilinu. Svo elskum við að spila og syngja saman, borða góðan mat og láta okkur dreyma um framtíðar Frakk­landsferðir.“

Hjónin keyptu einbýlishús áður en sonurinn kom í heiminn.

„Við fundum mjög óvænt drauma­húsið okkar í Breið­holtinu og stukkum á það sem betur fer því okkur líður svo vel þarna og þetta hverfi kom okkur mikið á óvart. Svo góðar göngu­leiðir, allt stútfullt af barna­fjölskyldum og yndis­legir nágrannar.“

Hetjan

Einar fór í framboð fyrir Framsóknar­flokkinn, komst áfram og er í dag borgar­fulltrúi og verður svo borgar­stjóri í upphafi árs 2024.

„Ég hef alltaf hvatt hann áfram í stjórn­málunum og er óendanlega stolt af honum og árangri Fram­sóknar í borginni í vor. Mér finnst hann óhræddur við að taka erfið mál föstum tökum og hann leysir þau vel. Hann er vakinn og sofinn yfir þessu verkefni svo ég er fullviss um að hann muni klárlega gera frábæra hluti fyrir borgina.“

Kaus Milla Framsóknar­flokkinn?

„Auðvitað.“

Mamma hefur alltaf verið hetjan mín.

Móðir Millu er Erla Sigríður Ragnars­dóttir sem var í hljóm­sveitinni Dúkkul­ísunum og muna margir eftir lögunum Pamela og Svart­hvíta hetjan mín.

„Mamma hefur alltaf verið hetjan mín og eftir að ég varð sjálf mamma þá finn ég hvað ég ber botnlausa virðingu fyrir henni. Dúkkulísurnar eru hrikalega skemmtilegar konur og eiga marga hittara. Fyrst og fremst hefur það mótað mig að sjá hóp af konum syngja og spila á sviðinu og gera allt vitlaust með lögunum sínum. Það er mjög hvetjandi fyrir ungar stelpur.

Þær fagna 40 ára afmæli í næstu viku með afmælis­tónleikum og eru frábært dæmi um að það þarf ekki að hætta að hafa gaman þó maður verði stór.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning