Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Þetta er besta leiðin að eldgosinu – Vanir menn leysa frá skjóðunni og vara við fimm hlutum

Björgunarsveitarmenn við störf. Myndin tengist ekki efni fréttarinnar.
Björg­un­ar­sveit­ar­menn við störf. Myndin teng­ist ekki efni frétt­ar­innar.

Það virðist nokkuð ljóst að þrátt fyrir að Almanna­varnir vari fólk við að ganga að gosinu, þá munu margir ekki geta staðist freistinguna. Björgunar­sveitin Þorbjörn reynir því að lágmarka hættuna og deilir á Facebook nákvæmri lýsingu á skástu göngu­leiðinni . Sú leið er jafnlöng maraþoni fram og til baka, og það á torfæru svæði. Það er því augljós­lega ekki við allra hæfi að labba að gosinu.

Þorbjörn deilir einnig fimm hlutum sem eru nauðsyn­legir til að fara í þessa svaðilför. „Hvernig er best að komast að eldgosinu?

Hér fyrir neðan er góð lýsing á bestu leiðinni að eldgosinu í dag og næstu daga en fyrst er gott að fara yfir nokkra mikilvæga hluti.

  1. Besta leiðin að gosinu fer eftir vindátt og veðri hverju sinni, fylgist því vel með tilmælum Lögreglu og viðbragðs­aðila.
  2. Verið vel útbúin. Mikilvægt að vera vel klædd, með nesti, góða skó, höfuðljós og full­hlaðinn síma.
  3. Skiljið bílinn ykkar eftir á bílastæði en ekki í vegköntum. Það er nóg af stæðum fyrir alla.
  4. Gasmengun er á svæðinu og gæti safnast í lægðum. Nauðsynlegt er að forðast reykinn af gosinu.
  5. Gamla hraunið er ennþá heitt og stór­hættulegt yfir­ferðar. Vinsamlegast gangið ekki á hrauninu.“

Björgunar­sveitarmenn lýsa svo leiðinni sem þeir mæla með. Mynd af þeirri leið má sjá hér fyrir neðan. „Gangan að nýja hrauninu og gígnum er að lágmarki 7 km aðra leið og hækkunin er um 300m. Það þýðir að heildar göngu­ferðin getur verið rúmir 14 kíló­metrar um nokkuð torfært svæði og eru mjög brattar brekkur í nágrenni gígsins. Gera má ráð fyrir að slík ganga taki 5 til 6 klukku­stundir hið minnsta.

Gangan að útsýnis­palli þar sem gígurinn sést er aðeins styttri eða rétt rúmir 5 km aðra leið.

Best er að leggja bílum á bíla­stæðið við gönguleið A og ganga svo eftir A leiðinni alla leið upp á Fagradals­fjall. Þegar komið er upp á fjallið er haldið eftir sléttunni til norð­austurs þar til gosið sést.

Verið er að vinna í slóða­málum og merkingum og erum við að reyna okkar besta í að gera þetta eins aðgengilegt og öruggt er. Björgunar­sveitin Þorbjörn mun fara í kvöld og setja niður stikur til þess að einfalda göngu­leiðina eins og hægt er. Að lokum hvetjum við alla til þess að fara varlega og njóta dýrðarinnar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið