Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Herdís Stefánsdótir: Semur tónlistina við kvikmynd í leikstjórn leikstjóra The Sixth Sense

Herdís Stefánsdóttir
Herdís Stef­áns­dóttir

„Ég samdi í fyrra tónlistina við sjónvarps­seríuna Y The Last Man sem var sýnd á Hulu og í tónlistar­teyminu var Sue Jacobs, „music supervisor“, sem er búin að vera lengi í þessum bransa og fékk hún Emmy-verðlaun á sínum tíma. Hún hefur til dæmis unnið með leik­stjóranum M. Night Shyamalan í 20 ár. Svo kláraðist þetta verkefni í fyrra­haust og í október hringdi umboðs­maðurinn minn í mig og spurði hvort ég vissi hver leik­stjórinn N. Night Shyamalan væri. Ég sagðist auðvitað vita það og sagði að ég væri búin að vera mikill aðdáandi hans síðan ég var lítil og sá The Sixth Sense í fyrsta skipti. Þá sagði umboðs­maðurinn að Shyamalan vildi tala við mig eins fljótt og hægt er og spurði hvenær ég gæti talað við hann á Zoom-fundi. Þá vissi ég ekki að Sue Jacobs hafi sagt honum frá mér og hann var þá byrjaður að leggja drög að hand­ritinu fyrir þessa mynd, Knock at the Cabin. Hann hafði þá verið að hlusta á tónlist eftir mig og notað hana sem innblástur við að skrifa handritið að myndinni. Hann er einmitt að hringja í mig núna. Má ég hringja í þig eftir eina mínútu?,“ segir Herdís.

Hlé er gert á viðtalinu en svo heldur það áfram eftir símtalið á milli Herdísar og Shyamalan.

„Við erum í miklu síma­sambandi; við tölum mikið saman í síma um allar senurnar.“

Hún segir þó að að um sé að ræða thriller. Thriller hor­ror.

Herdís talar svo um Zoom-fundinn sem þau Shyamalan héldu í fyrra. „Svo var ég ráðin strax í verkefnið. Myndin var svo tekin upp í vor og þá kom ég inn í verkefnið.“

Herdís má ekki enn segja um hvað myndin er. Hún segir þó að að um sé að ræða thriller. Thriller horror.

Innblástur frá 1950´s Hollywood

Herdís er spurð hvernig tónlist hún semji við thriller horror.

„Myndin er lagskipt. Þetta er ekki einföld flétta þar sem er bara thriller. Í kjarnanum eru miklu fleiri víddir af tilfinningum; tónlistin spannar því margar tilfinningalegar víddir. Ég þurfti að fara í smárannsóknar­vinnu og ég get ekki sagt þér alveg hvernig rannsóknar­vinnu ég þurfti að fara í til að semja af því að ég má ekki gefa það upp. En ég get sagt að það sem ég er að gera í þessu soundrakki er að ég er að taka svolítið innblástur frá 1950´s Hollywood. Ég er búin að vera að skoða Hitchock-myndir þar sem er tónlist frá tónskáldum eins og Bernard Hermann sem ég elska og er eitt af mínum uppáhalds­kvikmynda­tónskáldum. Í raun og veru er ég að sækja innblástur þangað. Það eina sem ég ætla að segja um myndina án þess að gefa upp um hvað hún er að það er verið að vísa í bæði myndheim og simbolísma sem við þekkjum svolítið frá upphafinu á horror- og thriller-myndum. Og þess vegna fékk ég áhuga á að skoða þessar myndir sem voru að gerast á 6. áratugnum í Hollywood sem eru mjög flottar eins og til dæmis Vertigo eftir Hitchock. Þannig að ég er svolítið innblásin af því tímabili. Tónlistin verður tekin upp með stórri hljómsveit í London í nóvember. Þetta er stórt „orchestral soundtrak“. Engin eletróník.“

Magnað

Herdís segir að þegar hún semji tónlist fyrir kvik­myndir þá sé hún sögumaður. „Það sem maður þarf að gera er að kafa mjög djúpt ofan í söguna og ofan í persónurnar og þú ert í raun og veru að bæta við þessari fimmtu vídd í myndina og í söguna. Þá ertu oft að segja þá hluti sem ekki er beint verið að segja í samtalinu heldur ert þú að bæta við einhverju aukalega. Aukavídd. Þannig að í fyrsta lagi þarf maður að kafa djúpt ofan í söguna og maður þarf eiginlega að fara lengra en það af því að maður þarf að fara í baksöguna og maður þarf að túlka þetta og fara í einhvern veginn hver er kjarninn í sögunni, hver er kjarninn í myndinni og hvað erum við að segja með þessu öllu. Þannig að það er stærsti innblásturinn að því hvernig maður byrjar að skrifa inn þemu og mótív. Svo er það fagur­fræðin í kvikmynda­stílnum og mynda­tökunni, litirnir og leikurinn og allt það hefur í raun og veru áhrif á fagur­fræðilega útsetningu tónlistarinnar; hvernig tónlist passar inn í þennan heim. Er þetta lífrænn heimur, er hann svolítið organ­ískur eða er ég að fara út í elektróník? Þannig að allir þessir hlutir hafa áhrif á það þegar maður er að byrja hvernig tónlitin þróast og hvernig tónlist maður byrjar að semja fyrir hvert verkefni.“

Herdís hafði lagt áhrif á að semja raftónlist áður en hún fór að semja kvikmynda­tónlist og segir hún að hún hafi gaman af að skora á sjálfa sig í að gera eitthvað sem hún þekkir ekki alveg. „Og það er svolítið nýtt fyrir mig að fara í svona stórt hljóm­sveitar­verk þar sem ég er líka að fara í ákveðna hljóm­fræði sem ég hef ekki notað áður. Og það er þegar ég er að tala um innblástur frá Bernard Hermann; þetta er ákveðin tónsmíða­tækni, tónsmíða­aðferðir, sem ég hef aldrei notað áður. Þannig að ég er búin að vera að stúdera gömul skor og nótur og sjá hvernig þetta var skrifað á þessum tíma og í raun og veru er þetta ákveðið ferli við að læra og stækka sem tónlistar­maður.“

Þetta er algert ævin­týri fyrir mig að fá að fara inn í þennan heim.

Herdís er spurð hvað það þýði fyrir ferilinn og fram­tíðina að semja tónlist fyrir kvikmynd í leik­stjórn M. Night Shyamalan.

„Þetta var svolítið stökk fyrir mig. Hann er búinn að vinna með mjög flottum tónskáldum eins og með James Newton Howard í The Sixth Sense sem var eitt stærsta tónskáldið í Hollywood á þeim tíma. Þannig að þetta er mikið tækifæri og mangað að fá að vinna með einhverjum sem er með allan þennan feril og þessa reynslu. Þetta er algert ævintýri fyrir mig að fá að fara inn í þennan heim,“ segir Herdís sem gerir ráð fyrir að ljúka við þetta verkfni í lok nóvember.

Hún segir svo að kvik­myndin verði sýnd í um 8000 kvikmynda­húsum víða um heim en hún verður frumsýnd í Banda­ríkjunum 3. febrúar á næsta ári. „Þetta er alveg stórt.“

Mikil pressa

Herdís segist lítið frí hafa tekið sér síðastliðin fjögur ár en að hún ætli að taka sér frí þegar þessu verkefni lýkur en hún á við að hún ætli sér þá ekki að taka að sér nein ný verkefni í tvo til þrjá mánuði heldur vinna í eigin tónlist og undirbúa plötu.

„Ég er í raun og veru ekki búin að stoppa í fjögur ár í þessu og það er komin tími á örlítið frí. Þetta er ekki beint hefð­bundin vinna og maður verður svo rosalega þreyttur. Maður er stundum að næstum því alla daga vikunnar og það er mikil pressa þannig að maður er svolítið búinn á því eftir svona (verkefni). Þetta eru sjö mánuðir án þess að stoppa og þar sem maður er alveg á fullu. Lúxusinn við þetta og sem ég hef ekki leyft mér hingað til er að geta kannski tekið tvo þrjá mánuði bara til að anda aðeins á milli.“

Hún sem er að brillera í kvikmynda­heiminum með tónlistinni sinni byrjaði átta ára gömul að læra á píanó hjá píanó­kennara sem bjó í sömu götu og þetta gerði hún af og til til 17 ára aldurs. Hún fór aldrei í tónlistar­skóla og lærði aldrei tónfræði eða hljóm­fræði. Hún var á náttúru­fræði­braut í Mennta­skólanum í Reykjavík og skráði sig svo í lögfræði við Háskóla Íslands.

Mér fannst það vera fjar­stæðu­kennt að ég gæti samið tón­list.

„Ég var svo hræðilega óánægð í lögfræði­náminu. Það átti svo illa við mig. Mér leið ekki vel og vissi ekki hver ég var eða hvað ég átti að gera. Ég fór svo að spila á píanóið þegar heim kom úr skólanum og fór að búa til mín eigin lög. Mér fannst það vera fjarstæðu­kennt að ég gæti samið tónlist; mér fannst það ekki vera raun­verulegt. En svo fór ég virkilega að hafa áhuga á því. Með fram lögfræði­náminu fór ég í einaktíma í hljóm­fræði og svo fór ég að útsetja fyrir kór og strengja­kvartett.“

Það endaði með því að Herdís hætti í lögfræði­náminu. Hún útskrifaðist frá tónsmíða­deild Lista­háskóla Íslands árið 2013 og lauk síðan árið 2017 meistara­námi í tónsmíðum með áherslu á kvikmynda­tónlist frá New York University. Hún bjó svo um tíma í Los Angeles en flutti svo heim til Íslands árið 2020.

Herdís býr með Dustin O’Halloran, píanó­leikara og tónskáldi, og eiga þau þriggja og hálfs árs gamla dóttur og býr fjöl­skyldan í Reykjavík. Þess má geta að Dustin var á sínum tíma tilnefndur til BAFTA, Óskars- og Golden Globe-verðlauna fyrir tónlistina í kvik­myndinni Lion.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning