Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Sigga fagnar stórafmælinu á Spáni: „Það vill svo til að við erum sex af sjö systkinum hér úti“

Sigga Beinteins
Sigga Bein­teins Mynd: Facebook

Afmælis­barn dagsins á stór­afmæli í dag. Um er að ræða enga aðra en popp­drottningu Íslands, Siggu Beinteins! Sigga fagnar í dag sextugs afmæli sínu.

Á síðunni Glatkistan.is segir að Sigga hafi fyrst vakið „athygli fyrir söng­hæfileika sína með HLH flokknum og með hljóm­sveitinni Kikk en varð með tímanum ein af ástsælustu söngkonum landsins, einkum í kjölfar þess að hún tók þátt fyrir hönd Íslands í Eurovision keppninni 1990 ásamt þáverandi hljómsveit sinni, Stjórninni, og lenti í fjórða sæti. Sigga hefur gefið út nokkrar sóló- og safn­plötur, og starfað með flestum af stærstu tónlistar­mönnum landsins bæði á plötum og á sviði.“

Mannlíf heyrði í afmælis­barninu í tilefni dagsins og spurði hana hvort hún hyggðist halda upp á daginn og þá á hvaða hátt.

„Ég er nú stödd á Spáni eins og er, í hlýjunni. Það vill svo til að við erum sex af sjö systkinum hér úti á sama tíma, þannig að við ætlum að halda smá teiti hjá einni systur minni sem er með hús hérna og svo ætlum við bara að fara út að borða og hafa það gaman,“ svaraði Sigga hress í símanum.

En hvað er framundan hjá Siggu?

„Ég kem heim á fimmtudags­kvöld og þá fer ég eiginlega beint norður í land. Við í Stjórninni erum að spila á Græna hattinum um Verslunar­manna­helgina og svo erum við Grétar að syngja á Sæludögum í Vatna­skógi. Svo er náttúru­lega risa vika framundan, Hinsegin dagar og Gay Pride og allt þetta en ég kem meðal annars fram á opnunar­hátíðinni og svo er Stjórnin að spila á ballinu sjálfu.“

Mannlíf óskar Siggu innilega til hamingju með stór­afmælið!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið