Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Fólk

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Eitt undarlegasta mannshvarf Íslandssögunnar – Framkvæmdastjórinn sem hvarf sporlaust

Magnús Teitsson var fæddur 14.janúar árið 1908 í Þýska­landi. Hann hét áður Max Robert Heinrich Keil en tók upp nýja nafnið þegar hann fékk íslenskan ríkis­borgararétt árið 1930. Í síðari heims­styrjöldinni var hann hand­tekinn og sendur úr landi vegna uppruna­lands síns.

Hann hafði þá kynnst eiginkonu sinni, Helgu Þorsteins og áttu þau tvö börn saman. Þegar stríðinu lauk hélt fjöl­skyldan aftur til Íslands og eignuðust hjónin tvö börn til viðbótar, þau settust að í Kópavogi.

Magnús var framkvæmda­stjóri hjá Málningu hf. Hann stofnaði síðar fyrir­tækið Stálborg ásamt fleirum, hann var vel metinn í fyrir­tækinu og sagður góður stjórn­andi.

Upp úr hádegi laugar­daginn 30.nóvember árið 1968 fór Magnús frá heimili sínu á Volkswagen bifreið sinni. Hann ætlaði að hjálpa vini sínum, Guðmundi Marinó Þórðarssyni en hann bjó í Fossvogi. Magnús sagði eiginkonu sinni að hann kæmi heim í kvöldmat. Guðmundur segir þá hafa og talað saman um stund og að Magnús hafi síðar hjálpað honum með bókhald. Guðmundur segir Magnús hafa hagað sér eðlilega og farið heim um sjö, þá var ferð hans heitið heim til síns í kvöldmat.

Vitni segir frá því að hann hafi séð bíl Magnúsar hjá sölu­turninum við Kópa­vogsbraut, ekki langt frá heimili hans. Klukkan átta um kvöldið tók fjöl­skylda hans eftir því að bíll Magnúsar var í innkeyrslunni en hann sjálfan var hvergi að sjá. Bíllyklarnir voru í læsingu bílstjóramegin.

Stuttu síðar var lögreglu gert viðvart og var leit hafin um leið. Aðstæðurnar þóttu óeðlilegar enda var Magnús þekktur fyrir að vera stundvís.

Mikill mann­skapur var við leitina að Magnúsi ásamt bátum og flugvélum. Aldrei fannst Magnús, né neitt sem tengdist honum. Um tíma var velt uppi þeim möguleika að Magnús hafi farið um borð í þýskt skip sem var í Reykja­víkurhöfn en rannsókn leyddi í ljós að ekkert benti til þess.

Þann 4.desember var leit að Magnúsi formlega hætt. Magnúsar er því enn saknað. Hvarf Magnúsar telst með þeim furðulegri sem orðið hafa á Íslandi og er líkt og jörðin hafi gleypt hann. Aldrei fór nein rannsókn fram á því hvort um saknæmt athæfi hafi getað átt sér stað.

Þessi baksýnis­spegill er endur­birtur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Lögreglan rannsakar árásina í Mjóddinni sem stórfellda líkamsárás. Þrír eru með stöðu sakbornings.
Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Sakaferill mannsins nær aftur til ársins 2010

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto