Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

ÍR hefur slitið leikmannasamningi við Tylan Birts – Ákærður fyrir nauðgun árið 2016

Stjórn körfu­knattleiks­deildar ÍR hefur rift leikmanna­samningi við Tylan Birts en leik­maðurinn var árið 2016 var hann ákærður fyrir annarrar gráðu nauðgun.

Eins og fram kom í nýlegri frétt Mannlífs var nýr amerískur leikmaður karlaliðs körfu­knattleiks­liðs ÍR ákærður fyrir annarrar gráðu nauðgun árið 2016 ásamt vini sínum. Ákærunni á hendur vini hans var vísað frá en Tylan játaði gegn því að fá vægari dóm.

Sjá einnig: Leikmaður ÍR ákærður fyrir nauðgun og viðurkenndi líkams­árás: „ÍR, er ekki allt í góðu hjá ykkur?“

Tylan Jamon Birts sem nýlega gekk til liðs við körfuknattleikslið ÍR var árið 2016, þegar hann var 19 ára, ákærður ásamt vini sínum, Ermias Tesfia Nega, fyrir annarrar gráðu nauðgun en þriðji vinurinn, Bradley Newman Jr. var ákærður fyrir aðra gráðu innrás í friðhelgi einka­lífsins. Dren­girnir voru allir leikmenn körfu­knattleiks­liðs Lindenwood háskólans í Missouri.

Málsatvik

Málsatvik voru þau að Nega, sem bjó í íbúð Newman ásamt Birts, fékk konu í heimsókn og átti við hana samþykkt samræði. Skrapp hann svo fram og sagði þeim Newman og Birts að hún væri „tilbúin“ fyrir þá. Birts er þá sagður hafa farið inn í svefn­herbergið þar sem konan lá og haft við hana samræði á meðan Newman horfði á. Konan fór að gruna að hún væri ekki að stunda kynlíf með Nega og kveikti ljósið og sá þá hið sanna. Þá sá hún einnig hvar Newman sat út í horni, nakinn og hafði verið að horfa á. Samkvæmt skýrslu lögreglu­fulltrúans S. Kaiser viðurkenndi Birts við yfirheyrslu að hann vissi að konan hefði ekki vitneskju um að hann væri sá sem væri að stunda kynlíf með henni. Sagði hann einnig að Newman hefði horft á. Í skýrslunni stendur að konan hafi sagt að þegar hún gekk á Nega með það sem gerst hafði hafi hann sagt henni að ef hún myndi segja frá þessu yrði það hún sem yrði smánuð fyrir þetta og að hún ætti ekki að tilkynna þetta né tala um þetta. Nega viðurkenndi við yfirheyrslu að hann hefði skroppið fram og þegar hann hafi snúið aftur inn í herbegið hafi konan verið í sjokki og með tárin í augunum.

Ermias Nega, Brad Newman og Tylan Birts

Kærunni á hendur Nega var vísað frá en Birts, nýji leikmaður ÍR játaði sök gegn vægari dómi. Var hann því dæmdur fyrir minni­háttar líkamsáras eða þriðja gráðu árás. Hlaut hann tveggja ára skilorðs­bundinn dóm og þurfti að vinna samfélags­vinnu í 50 klukku­stundir. Þá þurfti hann að greiða allan sakar­kostnaðinn. Saksókn­arinn í málinu, hjá St. Charles sýslu sagði að saksókn­ararnir taki kærum um kynferðis­brot alvarlega en eftir að hafa kíkt vel yfir allar hliðar málsins, hafi verið nauðsynlegt að draga úr kærunum.

Stjórn körfu­knattleiks­deildar ÍR sendi Mannlífi eftir­farandi yfir­lýsingu vegna málsins:

ÍR og Tylan Birts, bandarískur leikmaður meistara­flokks karla, hafa sameiginlega ákveðið að slíta leikmanna­samningi. Tylan leikur ekki fleiri leiki með liðinu. ÍR mun ráða annan bandarískan leikmann í hans stað og er frétta af því að vænta á næstunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning