Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Sjúklingi ekið 180 kílómetra í ranga átt frá heimili sínu

Skutl sem átti aðeins að taka nokkrar mínútur tók þess í stað fleiri klukku­stundir.

Sjúkrashúsið í Bæring
Sjúkras­húsið í Bæring Konu­greyið mátti dúsa í bílnum í klukku­stundir Mynd: Bæring-sjúkrahúsið

Kona á áttræðis­aldri var flutt í öfuga átt eftir læknis­skoðun á Bærum-sjúkra­húsið í Noregi. Í stað þess að aka henni um 500 metra á hjúkrunar­heimili þar sem hún dvelur var henni ekið alla leið í Hallingdal, í nokkurra klukku­stunda fjarlægð. Hún sat í bílnum, tímunum saman án þess að henni væri boðið upp á mat, drykk eða salernis­ferð.

„Um tvöleytið hringdu þau frá Pasientreiser (sem sjá um aksturs­þjónustu fyrir sjúklinga) og spurðu á hvaða heimilis­fang ætti að aka móður minni í Ål í Hallingdal,“ segir sonur konunnar við norska miðilinn Budstikka.

Hann hafði verið með móður sinni þar til hún steig upp í bílinn eftir skoðunina. Þegar bílstjórinn hringdi áttaði hann sig á því að móðir hans var komin á allt annan stað en til stóð.

„Þá urðum við svolítið stressaðir,“ segir hann.

Ferðin, sem venjulega tekur aðeins nokkrar mínútur, tók þess í stað nokkrar klukku­stundir en Ål er í 180 kílómetra fjarlægð frá Bærum. Enginn hafði leitað að konunni á meðan hún var á leiðinni, fyrr en sonur hennar fékk símtalið frá Hallingdal.

Konan sagðist ekki hafa áttað sig fyllilega á því hvert verið væri að fara með hana og hélt að hún væri á leið á annan stað.

Mikið álag fyrir konuna

Konan býr á Mariehaven-hjúkrunar­heimilinu í Bærum, skammt frá Bærum-sjúkra­húsi, þar sem hún fór í skoðun einn morgun í september. Hún kom ekki aftur á hjúkrunar­heimilið fyrr en rétt fyrir klukkan sjö um kvöldið, samkvæmt gögnum sem Budstikka hefur fengið aðgang að.

Konan vill að fjallað sé um málið í fjöl­miðlum en kýs að koma ekki fram undir nafni. Sonur hennar vill því einnig vera nafnlaus.

Konan mun ekki hafa hlotið líkamlegan skaða en atvikið reyndist henni erfitt. Að því loknu leitaði sonurinn svara hjá Pasientreiser, sjúkra­húsinu og sveitar­félaginu.

„Aðeins sveitar­félagið hefur svarað fyrir­spurn minni. Það baðst afsökunar og sagði að sjúkra­húsið bæri ábyrgð á mistökunum,“ segir hann.

„Þetta átti ekki að geta gerst,“ segir Irene Ranvig Vik, starfandi deildar­stjóri flutninga- og þjónustu­mála við Bærum-sjúkrahús, við Budstikka.

Hún segist skilja að reynslan hafi verið erfið fyrir konuna og aðstand­endur hennar. Málið sé flókið og unnið sé að því að komast að því hvað fór úrskeiðis.

Annað alvarlega tilvikið á skömmum tíma

Þetta er annað skiptið á skömmum tíma sem sjúklingur er fluttur á rangan stað, að því er Budstikka greinir frá.

Um miðjan júlí fannst kona á tíræðis­aldri, sem þjáðist af heila­bilun, ein utandyra að næturlagi eftir að henni hafði verið ekið á rangt heimilis­fang. Hún átti einnig að fara frá Bærum-sjúkra­húsi á Mariehaven-hjúkrunar­heimilið.

Bærum-sveitar­félagið hefur lýst áhyggjum af því að tvö alvarleg atvik hafi átt sér stað á skömmum tíma.

„Sjúklingar, aðstand­endur og stofnanir sveitar­félagsins verða að geta treyst því að flutningar til og frá sjúkra­húsum og lækna­vöktum séu öruggir og að sjúklingar komist á réttan stað,“ segir Richard Kongsteien, upplýsinga­fulltrúi sveitar­félagsins.

Hann telur atvikin sýna að mistök hafi átt sér stað sem verði að rannsaka og bregðast við.

Sjúkrahúsið talið bera ábyrgð

Bæði Pasientreiser, sem sá um flutninginn, og Bærum-sveitar­félagið telja að Bærum-sjúkra­húsið beri ábyrgð á mistökunum.

Kongsteien segir sjúkra­húsið bera ábyrgð á sjúklingnum, einnig meðan á flutningi stendur. Sjúkra­húsið sé með samning við Pasientreiser um að annast flutninginn fyrir sína hönd.

Hann segir sveitar­félagið hafa rætt við bæði sjúkra­húsið og heilbrigðis­yfirvöld í kjölfar atviksins.

„Við fylgjum málinu eftir, bæði faglega og innan stjórn­sýslunnar, til að tryggja að brugðist verði við,“ segir Kongsteien.

Hann gerir jafnframt ráð fyrir að um einangrað tilvik sé að ræða og segir mikilvægt að draga lærdóm af því svo slíkt endurtaki sig ekki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki heldur farga henni
Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Heimur

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Taryn Laprade og presturinn urðu vör við atvikið þegar þau beygðu inn á rangan veg á heimleið eftir blakleik.

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs