Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Dagsektir felldar niður ef olíumengun verður hreinsuð á Eskifirði

Fyrir­tækið hefur vanrækt tilmæli Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands í eitt og hálft ár.

Eskifjörður
Eski­fjörður Skuldin verður látin niður falla ef staðið verður við lof­orðið Mynd: Trausti Hafsteinsson

Heilbrigðis­eftirlit Austur­lands hefur ákveðið að fella niður dagsektir að upphæð nær fjórum milljónum króna á hendur fyrir­tækinu Móglí ehf., að því gefnu að fyrir­tækið ljúki hreinsun olíu­mengaðs jarðvegs á lóðum sínum við Strand­götu 59 og 61 á Eskifirði fyrir 15. nóvember næst­komandi. Þetta kemur fram í umfjöllun Austur­fréttar.

Ákvörðunin var tekin á síðasta fundi stjórnar heilbrigðis­eftirlitsins, eftir að Móglí hafði ítrekað vanrækt fyrirmæli eftirlitsins í tæpt eitt og hálft ár. Fyrir­tækið sendi þó nýlega inn verk­áætlun um hreinsun lóðanna, í kjölfar úttektar verkfræði­stofunnar EFLU á umfangi mengunarinnar. Nágrannar hafa lengi kvartað yfir olíulykt og óhreinindum frá svæðinu.

Mengunin á rætur að rekja til leka úr tveimur gömlum húsa­geymum sem staðið hefur svo lengi að jarðvegur á lóðunum er orðinn mettaður af olíu. Lóðirnar standa nærri sjó og hafa yfirvöld haft áhyggjur af að olían gæti runnið út í hafið.

Dagsektir að upphæð 20 þúsund krónur á dag voru lagðar á fyrir­tækið fyrir tæpu ári, þar til heildar­skuldin nam nær fjórum milljónum króna. Ef hreinsun jarðvegs og förgun geymanna verður lokið innan frests fellur sú fjárhæð niður að fullu.

Heilbrigðis­eftirlitið hyggst þó innheimta kostnað vegna úttektar og tillögu­gerðar EFLU. Verði ekki staðið við skiladag hreinsunar mun eftir­litið láta framkvæma verkið á kostnað Móglí ehf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Landið

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heilluðust af íslenska hálendinu

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp