Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Viðbrögðum íslenskra stjórnvalda hrósað – Oftast dregið úr þjónustu þegar þörfin eykst

Íslenskum stjórn­völdum er hrósað sérstak­lega í alþjóðlegri skýrslu fyrir þolendur kynbundins ofbeldis.

UN Women og Þróunar­samvinnu­stofnun Sameinuðu þjóðanna (UNDP) hafa gefið út nýja skýrslu um viðbragðs­áætlanir ríkja heimsins við COVID-19 faraldrinum. Í skýrslunni er sérstak­lega fjallað um viðbrögð íslenskra stjórn­valda vegna kynbundins ofbeldis gegn konum og börnum.

Skýrslan heitir Government Responses to COVID-19: Lessons on Gender Equality for a World in Turmoil og kom út í sumar.

Brugðust við auknu álagi

Viðbrögð íslenskra stjórn­valda voru að styðja betur við þau þjónustu­úrræði sem þegar voru til staðar og tryggja áfram­haldandi starfsemi þeirra vegna aukningu kynbundins ofbeldis gegn konum og börnum á tímum COVID-19.

Í skýrslunni er því einnig lýst að íslensk stjórn­völd hafi skipað teymi sérstak­lega til að stýra og samræma vinnu við útfærslu aðgerða gegn ofbeldi.

Meðal þess sem teymið lagði til var að koma yrði á fót upplýsinga­torgi, opna kvenna­athvarf á Akureyri, auka stuðning við börn í viðkvæmri stöðu og auka fjár­veitingar til frjálsra félaga­samtaka og sveitar­félaga til að halda úti þjónustu.

Þannig fékk Kvenna­athvarfið 100 milljónir til að bæta húsakost sinn og aðgengi; Stígamót fékk 20 milljónir til að bregðast við auknu álagi og draga úr biðtíma og Reykja­víkurborg fékk styrk til að fjármagna tíma­bundið húsnæði fyrir heimilis­lausar konur.

Almennt ekki hugað að kynjasjónarmiðum

Efni skýrslunnar er unnið af greiningar­deildum UN Women og UNDP og fjallar um aðgerðir stjórn­valda um allan heim vegna COVID-19 með tilliti til kynja­sjónarmiða og jafnréttis. Unnið var með gögn frá 226 ríkjum heims og var niður­staðan sú að almennt var ekki hugað að kynja­sjónarmiðum í viðbragðs­áætlunum ríkja.

  • 13 ríki af 226 gerðu aðgerðir gegn kynbundnu ofbeldi að ríkjandi stefnu í aðgerðar­áætlunum sínum.
  • 0,0002% af fjármagni sem fór í COVID-19 viðbragðs­áætlanir fór í að uppræta kynbundið ofbeldi.
  • Ríki sem eiga sterka feminíska hreyfingu voru talsvert líklegri til að taka tillit til kynjasjóna­miða í COVID-19 áætlunum sínum en þau ríki þar sem engin eða veik feminísk hreyfing er við lýði.
  • 12% af efnahags­áætlunum ríkja studdu við efnahagslegt öryggi kvenna.
  • 82% af aðgerðar­teymum þessara 226 ríkja voru skipuð karl­mönnum að mestu. Aðeins 7% aðgerða­teyma voru með jafnt kynja­hlutfall. 11% voru skipuð konum að mestu.

Í skýrslunni er einnig farið yfir úrræði sem þóttu vel til takast, líkt og úrræði íslenskra stjórn­valda til að sporna geng kynbundnu ofbeldi og auka þjónustu til þolenda kynbundins ofbeldis á tímum COVID-19.

Oftast dregið úr þjónustu þegar þörfin eykst

Í skýrslunni kom fram að þegar hamfarir, átök eða efnahags­þrengingar herja á, eykst tíðni kynbundins ofbeldis. Á sama tíma skerðist aðgengi að þjónustu, m.a. vegna þess að innviðir verða fyrir skemmdum eða dregið er úr fjár­veitingum.

Á tímum COVID-19 jókst tíðni kynbundins ofbeldis umtals­vert á sama tíma og aðgengi að úrræðum var takmarkað vegna samkomu­banna og fjár­skorts.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið