Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Sólveig Anna: „Auðvitað óhugnanlegt að þessir menn voru að gæla við að taka mig af lífi“

„Miðað við tíma­setninguna var ég þarna á veitinga­stað að borða með 15 ára dóttur minni,“ segir Gunnar Smári Egilsson, forsprakki Sósíalista­flokksins, eftir að honum var tilkynnt að hinir meintu íslensku hryðju­verkamenn gældu við að drepa sig.

Ekki aðeins var Gunnar Smári á listanum yfir það fólk sem mennirnir tveir ræddu um sín á milli að myrða heldur var þar líka Sólveig Anna Jóns­dóttir, formaður Eflingar. Samkvæmt Samstöðinni voru henni sýnd samskipti þar sem hún var kölluð litla komma­lufsan sem vildi gera byltingu. Á eftir fylgdu heit­strengingar mannanna um að drepa hana einn daginn.

„Auðvitað er óhugnanlegt að fá að vita að þessir menn hafi verið að smíða vopn og gæla við að taka mig af lífi fyrir pólitískar skoðanir og starf,“ segir Sólveig Anna. „En ég er bara orðin svo dofin eftir linnulausar árásir og ásakanir undan­farin ár að ég tók þessu fyrst eins og hverju öðru hundsbiti. Þegar dagarnir líða finn ég hins vegar að tilhugsunin venst illa. En í dag hef ég um annað að hugsa, má ekki hugsa um þetta,“ segir Sólveig Anna.

Gunnari Smára voru sýnd samskipti þar sem annar maðurinn var staddur á sama veitinga­stað og hann og barmaði sér yfir að vera ekki vopnaður. Á eftir fylgdu vanga­veltur um hvað myndi gerast ef hann dræpi Gunnar Smára þarna á staðnum.

„Við förum þangað reglulega til að borða uppáhalds­matinn hennar. Þetta er haturs­orðræða og hunda­flaut til íslenskra Proud Boys, eins og þessara drengja sem sitja í gæslu­varðhaldi. Í huga þeirra eru þetta skilaboð um að það sé þjóðþrifa­verk að drepa Sólveigu Önnu, að þannig megi gera Ísland að betra samfélagi. Fyrir mánuði sagði ég frá hótunum sem mér bárust frá manni sem ætlaði að leita vopna til að beita á mig og fjöl­skyldu mína. En því miður voru viðbrögðin bara einhver derringur í aðstoðar­manni dómsmála­ráðherra, eitthvað í þá veruna að ég hefði kallað þetta yfir mig,“ segir Gunnar Smári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning