Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Ofbeldi og íslenskt samfélag: „Þolendur ofbeldis bera ör á líkama og sál alla ævi“

Elín Jósepsdóttir.
Elín Jós­eps­dóttir.

Elín Jóseps­dóttir skrifar grein sem er birt í tilefni 16 daga átaks gegn kynbundnu ofbeldi, og hefst á þessum orðum:

„Við lifum á tímum sem mörg vilja kalla tíma útskúfunar- eða slaufunarmenningar. Við lifum á tímum þar sem við erum að læra að kalla hlutina réttum nöfnum og það sem áður var talað um í hálfum hljóðum sem fjölskyldu­harmleik er nú einfald­lega talað um sem ofbeldi.“

Elín bætir því við að „í dag trúum við þolendum og hjálpum þeim, auk þess sem við drögum gerendur til ábyrgðar. En mörgum þykir þó of langt gengið að útskúfa gerendum úr samfélaginu og eru fljót að bjóða þá velkomna aftur eftir nokkurra mánaða hlé. Það sem gerendur þurfa að þola vegna gjörða sinna þykir nægilega slæmt til þess að samfélagið fyrirgefi þeim, burtséð frá því hvort gerendur hafi tekið ábyrgð eða dregið einhvern lærdóm af því að þolendur þeirra opna sig.“

Hún bendir á að „það kemur vissulega fyrir að gerendur þurfi að þola ýmislegt vegna gjörða sinna, til dæmis að fólk sendi þeim ljót skilaboð eða tali um gjörðir þeirra opinber­lega. Þeir þurfa að þola að missa vinnuna eða fá ekki vinnu í sínum bransa. Sumir þurfa jafnvel að þola það að fjöl­skylda og vinir snúi við þeim baki.

Þolendur þurfa að þola varanlegan skaða af völdum ofbeldis. Margir þolendur ofbeldis hafa örkuml­ast vegna barsmíða og glíma oft við þunglyndi, kvíða og áfalla­streitu árum saman eftir ofbeldi. Þau þurfa að þola það að bera ör á líkama og sál alla ævi. Þolendur ofbeldis þurfa oft að þola það að yfirgefa heimili sín. Heilu fjöl­skyldurnar eru sendar með lögreglu­fylgd í Kvenna­athvarfið þar sem þau þurfa að dvelja jafnvel mánuðum saman, á meðan gerandi fær að sitja eftir heima. Þau þurfa að líta yfir öxl sína á leið í vinnu og skóla á meðan gerandi hringsólar þar í kring og sendir þeim jafnvel skilaboð um það á meðan.“

Hún færir í tal að „þolendur þurfa að þola það ítrekað að koma augliti til auglitis við gerendur sína. Konur og börn þurfa oft að mæta körlum sem hafa beitt þau andlegu, líkamlegu og kynferðis­legu ofbeldi og sitja undir ógnandi hegðun og hótunum í réttarsal, í umgengni, í foreldra­viðtölum og ýmsum öðrum aðstæðum. Margir þolendur þurfa að þola fátækt. Þolendur þora oft ekki í vinnu af ótta við gerendur og missa þannig vinnuna.“

Elín bendir á að „gerendur hafa einnig oft stjórn á fjármálum þolenda sinna, auk þess sem þeir geta komið í veg fyrir það að þau fái fjárhags­aðstoð með því að neita að samþykkja skilnað. Þolendur hafa þurft að þola það að vera útskúfað úr samfélagi sínu. Margir þolendur finna fyrir óbeinum fordómum í umhverfi sínu eftir að hafa opinberað ofbeldi, en öðrum er bókstaf­lega bolað burt með undir­skrifta­listum eða beinum hótunum frá nærumhverfi sínu.

Við sem samfélag þurfum að komast að því hvernig við ætlum að taka á ofbeldi og hvernig við viljum aðstoða þolendur og gerendur í ofbeldis­málum. En við megum ekki gleyma því hver eru hinir raun­verulegu þolendur. Við megum ekki gleyma því hver hin útskúfuðu eru í raun og veru.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Héraðs­dómur synjar foreldrum Sólons um vitna­leiðslu

Foreldrarnir vildu fá fram hvað sagt var á fundi sonar þeirra með starfsfólki Icelandair fyrir starfslok hans
Innlent

Biðja um svör eftir að hundar urðu kettinum þeirra að bana

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Pólitík

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Skiptar skoðanir meðal Sjálfstæðismanna um sölu á Landsbankanum

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis